Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 20

Kirkjuritið - 01.02.1963, Síða 20
66 KIKKJUKITIÐ verkmn og ávinnum eilíft líf. Þannig er Kristi burtu kippt; því að um það er þagað, að vér fáum fyrirgefningu syndanna af náð fyrir Krist án verðskuldunar frá vorri liálfu. Síðan er lýst kenningu kaþólskra guðfræðinga um tvenns konar verðskuldun (meritum de congruo og meritum de con- digno). Fyrst kemur sú verðskuldun, sem samsvarar verkinu, cn seinna sú verðskuldun, sem er fullverðug. Guð launar livert verk eins og verðugt er með náð, og þá er komið upp á náð- arþrepið, en eftir það er liægt að vinna til eilífs lífs. En vand- inn er sá að vita, livort um er að ræða lægri eða æðri verð- skuldun, en sá vandi kemur til sögunnar, þegar samvizkan verður óróleg. Meðan allt leikur í lyndi er auðvelt að treysta verðleikunum, en þeir fölna fljótt í sálarneyð. Þá liggur ekk- ert fyrir nema eymd og örvílnun, nema fagnaðarerindið urn Krist komi til bjargar með náð og endurlausn fyrir trúna eina. Lútlier lýsir þessari lægri og æðri verðskuldun kaþólskra í skýringum sínuni á Gal. 2, 16: „Þetta felur í sér, að maður, sem lifir í dauðasynd og án náðar, ávinnur sér samsvörunar- verðskuldun (meritum de congruo), sem lilýtur náð að laun- um, ef liann vinnur gott verk með góðuni ásetningi náttúr- legs manns, les eða lilýðir messu, gefur ölmusu eða því um líkt. Þegar bann svo befur unnið til náðarinnar með meritum de congruo getur liann unnið verk með meritum de cóndigno, sem verðskulda eilíft Iíf“. 1 fyrra tilfellinu er Guði ekki skylt að launa, en liann er góður og réttvís, og sómir bonum því að viðurkenna slíkt verk, þótt unnið sé í dauðasynd, og launa með náð. En upp frá því er Guð í skuld við manninn og réttarfarslega skyldur að veita lionum eilíft líf. — Þessi tröppu- gangur til lífsins er liörmulegur skáldskapur, en annars er ekki að vænta, þegar vikið er frá fagnaðarboðskapnum, enda segir Lútlier: „Þetta er guðfræði Antikrists“. Með þessu er ekki verið að kasta rýrð á beiðarlegt líferni; aðeins má ekki gera það að lijálpræði, sem varpi rýrð á Krist. Góð verk eru góð á mannlega vísn, þó að þau standist ekki fyrir Guði og afli ekki eilífs lífs. Yér vinnum ekki til fyrirgefningar með verknm vornm og erum ekki réttlátir í augum Guðs vegna ytri breytni. Vér get- um ekki elskað Guð og lialdið boð lians, treyst lionum og þakk-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.