Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 23

Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 23
KIR KJURITIÐ 69 Enn á þetta við um tilvist Guðs og sálarinnar. Engir verða því nauðugir viljugir knúnir til að játa tilveru þeirra á sama veg og unnt er að sanna þeim tilveru sýnilegra og áþreifanlegra liluta. Hitt er aðeins undarlegt ef þeir af oss, sem vilja telja sig kristna, drögum þetta stórlega í efa. Því að trúin á Guð og eilíft gildi mannssálarinnar er, ef svo mætti að orði kveða, sjálft lífið í kristindóminum. Væri unnt að lialda því fram að Kristur liafi talið þetta 'afasamt? Eða mundi Iiann hafa fallist á að það væri unnt að trua á liann, þótt menn tryðu ekki á Guði? Og eins og Páll segir rettilega að Kristur sé ekki upprisinn, ef ekki er til upp- risa dauðra, er hitt gefið, að liafi Kristur risið upp ■— en á því hyggigt kirkjan — þá rísa h'ka dauðir upp. „Moldin liverf- llr aftur til jarðarinnar en andinn til Guðs, sem gaf hann“, Sumir halda því fram, að kristin siðakenning skipti öllu ruáli. Hún sé það skynsamlegasta, sem kunnugt sé í þeim efn- uui og öllum nóg að læra hana og lifa eftir henni. Gallinn á þpssari skoðun er sá, að öll siðakenning — þessi jafnt og aðr- ar -— er lífbundin ákveðnum trúarskoðunum. Sagan sýnir það og sannar að t. d. miklir valdhafar, sem afneita trú Krists °S trúnni á Krist, virða ekki siðaboð hans meira en ef þau 'æru „hljómandi málmur og hvellandi bjalla“. Eá virðist mörgum vera það undrunarefni, að vér íslendingar ®kulum ekki vera kristnari en vér erum eflir senn þúsund ára starf kirkjunnar í landinu. Það er eins og þeir hahli að svo u'Úi að vera komið fyrir löngu að allir fæddust kristnir hér- lendis. Eu hörnin fæðast nákvæmlega eins fákunnandi urn kristin- 'lóminn sem aðra ámóta lífsþekkingu nú og fyrr, þegar landið v ar enn byggt heiðnum mönnum. Þetta hefur það í för með sér ‘Uð á öllum tímum er harizt um mannssálirnar bæði í verald- legum og andlegum efnum. Þar koma jafnt stjórnmálamenn °ÍI kirkjunnar þjónar við sögu. Spurningin í dag er sú, hvort vér, sem teljum oss unna rrkju og kristindómi — annað og meira — vér, sem höld- uui því fram að það varði alla mestu og skapi þjóðinni örlög, Wort Kristur sigri eða ekki — spurningin er sú, hvort vér synum þessa trú í verki. Erum vér á undanhahli eða í sókn?

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.