Kirkjuritið - 01.02.1963, Side 24

Kirkjuritið - 01.02.1963, Side 24
70 KIRKJURITIÐ Mér finnst vér sláum lielzt til mikið undan. Og megi það þó livorki, né sé þess þörf. Vér eigum bæði góðan málstað og vígstöðu. Hverjir liafa háleitari hugsjónir á boðstólum? Hverjir hahla eins fram gildi mannsins og telja lionuni fleira fært? Og það er fleira en bláber trú, sem vér liöfum á höndun- nm. Vér getum telft fram þeirri persónu mannkynssögunnar, sem á sér undursamlegasta ævina og áhrifaríkastan dauð- ann. Hann er engin goðsagnapersóna. Hann hefur valdið mestu aldahvörfum sögunnar og er þrátt fyrir allt meira elskaður og ákafar ásóttur en nokkur annar þann dag í dag. Það er vafalaust engin ástæða til að æðrast hans vegna. En mér vakir það í hug, sem ég vék að í upphafi pistilisins: Hvernig er kristnilífi voru komið? Og livað' gerum vér til að kristna vora kynslóð og lialda þann veg kristninni við í land- inu — og helzt að auka hana. I því sambandi vil ég minna á að kirkjan þarf á fleira fólki að lialda m. a. sem sækir samkomur liennar. Kirkjurækni er áríðandi trúboð. Og hún þarf þess líka við, að menn láti sér annara um málgögn hennar eins og þetta rit. Það er unnt að gera það vel úr garði og auka útbreiðslu þess, ef þeir, sem vilja að vegur kirkjunnar aukist og kristnin verði áhrifaríkari í þjóðlífinu ljá því lið í orði og verki. Þeim, sem engan skilning hafa á þessu, að kirkjan þarf að vera í sókn en ekki í vörn, livað þá á undanhaldi, og að hún á mikið undir trún- aði þeirra, veldur það vart andvökum, þótt kalskellur séu á kristniakri þjóðarinnar. En nú hygg ég að raunar séu mörgum þessi mál hugfólgn- ari en þeir gera sér ljóst, og að tómlæti þeirra um að leggja þeim eitthvað að mörkum mest vanabundið. Ég vil því benda á tvær leiðir, sem kristnir áhugamenn — styrktarmenn sams konar rita og Kirkjuritsins fara víða erlendis. önnur er sú, að margir kaupendur afla liver um sig a. m. k., eins nýs áskrif- anda. Hin — að ýmsir gefa vinum og kunningjum áskriftar- verð eins árgangs, til að kynna þeim ritið og vekja áhuga þeirra á þeim málefnum, sem þar eru á baugi. Mörguin verður slík vinargjöf kærkomin og hún liefur þann- ig tvöfalt gildi.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.