Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 26

Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 26
72 KIItKJURITID Máltæki segir, að þegar liús nábúans stendur í ljósum log- um sé manns eigið í hættu. Mig langar hér til að vekja athygli á greinum í sænska kirkjublaðinu (Yár kyrka) 2. og 3. thl. þessa árs, um ofangreind mál. Fyrri greinin nefnist: Töfhi- átið — þjóðarvoði? Upphafið er á þessa leið: „Andlegt heilsu- far vort er orðid áhyggjuefni. Fjórði liver Stokkhólmsbúi og fimmti hver maður úti á landi jiarfnast einhvers konar and- legrar verndar. Alltof mikið hugsunarleysi ríkir varðandi út- gáfu lyfseðla út á svefn- og taugameðul, og einnig deyfilyf“. Þetta lætur A. Engel, landlæknir liafa eftir sér í blaðafregn. Margir læknar taka í sama streng: Misnotkun taflna og hinna og þessara lyfja grefur nndan andlegu og líkamlegu heilsufari þjóðarinnar. Eina leiðin til að liamla á móti auk- inni misnotkun er almennari fræðsla“. Síðar er m. a. getið um eftirfarandi staðreyndir: Árið 1962 gleyptu Svíar í sig töflur og alls konar lyf fyrir um 4300 milljónir ísl. króna. ... Neyzlan vex um 125 milljónir ísl. króna árlega. . .. Mest er neytt af alls konar örvandi og styrkjandi meðulum og í öðru lagi ýmis konar róandi lyfjum. Rannsóknir liafa leitt í Ijós, að fólk er óspart á að koma öðrum, bæði vinum og vandalausum á bragðið og hjálpa þeirn um slík lyf, ef svo ber undir. 25 af hundraði taka einu sinni á viku inn meðul, sem þeir kaupa án læknisráðs. 33 af hundr- aði víkja út af fyrirmælum læknanna. Næstum annar liver maður er svo hirðulaus um þessi meðul, að börn og ungling- ar geta liæglega náð í Jiau og vanið sig á Jiau. Þetta er að verða sænskt Jijóðarböl, sem krefst nýrra aðgerða: lækna, presta og sálfræðinga. Ekki sízt sakir þess að tala sjálfsmorða og tilrauna í þá átt liefur fimmfaldast síðan 1946. Ég læt Jiessar tölur tala að siniii. . . . Þessi hróp ætti ég heldur að segja. önnur viSvörun Hún er sótt í janúarhefti World Christian Digest. Amerísk- ur siðfræðiprófessor og starfandi sálfræðingur, dr. Hermann Keiter, lýsir þar átakanlegu dæmi um sálsýki. Hann segir í greinarlok: „Vér kristnir menn ættum að kynna oss bæði einkenni geð- sýki og möguleika geðverndar. Þetta er ekki fátíð meinsemd.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.