Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 33
KIRKJURITIÐ
79
Krists, cins o{í t. d. var um Skálholtskirkju, og þar af væri
öafn kirkjunnar dregið, kirkja liins lieilaga kross. Marga fleiri
góða gripi á kirkjan, þegar liér er komið sögu, þar á meðal
tvo litla krossa sinelta, þ. e. emaleraða, altarisbrík (þ. e. altaris-
töflu)5 altarisklæði tvenn, messuklæði þrenn, tvo liökla, fjórar
klukkur og glerglugga, svo að eittlivað sé talið, og kirkjan er
begar auðug orðin af jarðeignum. Segir svo í máldaganum
1^55: „Krosskirkja að Setbergi á lieimaland allt og Kverná,
Haniraland, níu hundruð í Spjararlandi og Melrakkaey“. Síð-
ar bafa kirkjunni bætzt aðrar jarðir: Þórdísarstaðir (með lijá-
kigunum Naustál og Hallsstöðum), Akurtraðir, Grund, Eiði,
Ivinn í Staðarsveit og Faxastaðir í Breiðuvík. Itök á liún, svo
sern hálfan Grafarreka í Breiðuvík við Knarrarkirkju. Árið
I^9() hefur kirkjan makaskipti á Grund og kóngsjörðunum
Áatnabúðum og Skallabúðum, og befur sú ráðstöfun vafalaust
'erið gerð, til þess að landsstjórnin á þeim tíma gæti náð undir
S1g því landssvæði, þar sem kaupstaðurinn í Grundarfirði átti
aó rísa, en kaupstaðarréttindi hafði Grundarfjörður lilotið
fjóruni árum áður. Þegar sr. Einar S. Einarsson tók við stað
°g kirkju árið 1828, fylgdu prestssetrinu og kirkjujörðunum
kúgildi auk sauða, nauta, hesta og margs annars. Síðar fylgdu
staðnum, tveim hjáleigum hans og 9 kirkjujörðum, 20 kúgildi,
°g leigur þar af voru 400 pund í smjöri. Undir nytjar heima-
Jarðarinnar heyrði heimaland allt með gögnum og gæðum, Mel-
rakkaey í Grundarfjarðarmynni og engjar á Grundarbotni. 1
Melrakkaey var æðarvarp, kofnatekja og 4 kúa fóður af töðu.
^ru nú flestar eignir kirkjunnar undan henni gengnar nema
^elrakkaey, engjar á Grundarbotni og heimajörðin, sem er
l'ó minni en áður var.
II
Um presta í Eyrarsveit mætti flytja langt mál, enda eru
^'lnn nöfn 37 klerka, sem setið liafa á Öndverðareyri, Hall-
l'jarnareyri og Setbergi, en marga mun þó vanta í prestaröð-
nia fyrir siðbót. Um marga er lítið kunnugt nema nafnið eitt,
en liér verður nokkurra presta í Eyrarsveit eftir siðbót getið
|njög stuttlega. Sá prestur, sem lengst allra hefur þjónað Set-
lergsprestakalli, a. m. k. eftir siðbót, var Skafti Loftsson, sem