Kirkjuritið - 01.02.1963, Page 50
ERLENDAR
F R É T T I R
Vonir standa til að' stofnað verði Kirkjusamband mótmœlenda i Afríku
á þingi, er haldið verður 20.—30. apríl n. k. í Kanipala í Uganda. Vísir
þessa hófst í Iliadan í Nigeriu 1958. Hér eiga um 200 niillj. inanna lilnt
að máli í 50 löndum. Og tala þeir 700 afrikönsk tiingumál auk fjögurra
evrópskra. Fjöldi kirkjudeildanna er mjög mikill og húa sumar þeirra við
ótrúlega einangrun.
Þrátt fyrir mikla örðugleika er talið, að kristnin sé þarna víða í sókn.
..Dr. Hewlett Johnson, „rauði“ dómprófasturinn i Kantaraliorg, liefur
ákveðið að láta af emhætti í maí. Hann er nú 88 ára að aldri.
Heimskunnur fyrir samúð sína með koinmúnistum, sem hann liefur varið
með oddi og egg frá því að þeir komust til valda í Rússlandi. En það
sýnir frjálslyndi hrezkra yfirvalda, að honum hefur aldrei verið varnað að
lýsa pólitískum skoðunum sínum, svo sem liann hefur lyst, hvað þá að
lionuni væri sljakað úr emhætti. Ber og öllum saman mn, að hann sé
innilega trúuður maður og á margan liált glæsilegur kirkjuhöfðingi.
Ilyggst liann nú rita ævisögu sina.
Ársskýrsla Hinnar SameinuSu safnaÖarhjálpar í Danmörku fyrir árið
1961—62 her með sér að starf hennar er afar fjölhreytt og stendur i
mikluin hlónia. M. a. eru rekin mörg sjúkrahús og elliheimili, og mikil
harnaverndarstarfseini. Matgjafir í stóruni stíl.
Niðurstöðutölur reikninga eru uin 15 milljónir íslenzkra króna. Mikill
hluti þeirra gjafir.
Guðfræði- og heimspekiprófessorinn, Paul Tillich, hlaut þýzk friðar-
verðlaun árið sem leið. Við afhending þeirra komst Ottó Dibelius svo að
orði, að Tillich væri „liinn mikli sálusorgari liins aðþrengda nútíðar-
manns“. Tillich sagði, að forðast yrði atomstrið nieð ölluin ráðum. Menn-
irnir hefðu ekki leyfi til að hinda endi á sögu sina.
Ný BiblíuþýSing er á döfinni i Póllandi. Á hún að leysa liina svokölluðu
Danzigarbihlíu af hólmi, sem er uin 300 ára gömul.
GuSleysisáróSur og kristin trúboSun eiga sífellt i liöggi hvort við ann-
að í Rússlandi. Síðustu fregnir lierma, að kirkjan virðist fremur sœkja á.
Ölíkt meiri hrögð eru að því nú en áöur að ýinis konar kirlcjuleiStogar
jari í kynnisför til liússlunds. 13. evangcliskir forustumeun frá Ameríku
dvöldu þar t. d. í þrjár vikur undir lok síðasta árs. Rússneska kirkjan
liefur líka tekið upp kynningarsamhand við rómversk-kaþólsku kirkjuna
og á þátt í starfsemi Alkirkjuráðsins. Allt horfir þetta í lieilla-átt.