Kirkjuritið - 01.11.1966, Qupperneq 35

Kirkjuritið - 01.11.1966, Qupperneq 35
KIRKJURITIÐ 417 eyða borgir og landflæmi í einn vetfangi og mönnum vex sá máttur í augum vegna þess að engir eiga sér undankomuvon. En ekki er rétt að gleyma að vísindin hafa samtímis fært mannkyninu liverja blessunina annarri meiri. Ungbarnadauð- inn er víða horfinn úr sögunni. Linaðar eru kvalir óteljandi sjúklinga. Ljós og varmi flóir um íbúðir flestra þjóða um heim allan. Og sakir afreka vísindamannanna börfar bungurvofan * meira undan. Þann veg vinna vísindamennirnir flestum meira í anda Krists. FrœSslutakmarkiS Engir tímar eru algóðir, enda fæstir anægðir með það, sem við- gengst á þeirra dögum. Guðmundur á Sandi skrifar í bréfi til «Norðurlands“ 17. júlí 1909: „Allir menn í landinu þykjast bera fyrir brjósti menntun harna og þroska einstaklinganna. Til þess er kostað meira fé en bægt er. — En til livers er að mennta börn bér í landi, þar Sem varla sést til sólar fyrir mývargi þeim, sem rangsnúnar foksemdir og kynngi magnaðar þjóðlygar þyrla upp í loftið? — Það befur komið í 1 jós nú á síðustu tímum, að þjóðin veit eEki, hvað hún vill. Hún veit bvað liún vill ekki. En það er ekki nóg. Það er eitt einkenni bernskunnar og þroskaleysisins. '— Mér kemur í hug það, sem gamall bóndi, greindur og ein- kennilegur, sagði eitt sinn lieima bjá sér. Hann sagði: „Það er inikið óhræsis kvenfólk liérna: Það veit aldrei, livað það vill — en vill þó alltaf eittlivað.“ Mönnum mun finnast þetta spéspegill af uppliafi aldarinnar. Ég bregð honum samt upp vegna þess að liann felur í sér vissan Sannleiksvott um uppeldi og skólamál vorra tíma — og það ' íðar en hér á Islandi. Vér eigum fjöbla skóla og ágæta. Ekkert harn eða unglingur þarf að fara á mis við margra ára menntun. En takmark barna- og unglingaskólanna er ekki eins skýrt °g æskilegt væri, og óneitanlega undarlegt bvað sumt er þar hornreka, sem áður þótti nauðsynlegast til mannlegs þroska. til að búa menn sem bezt úr garði til að verða landi og þjóð að liði. 27

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.