Kirkjuritið - 01.04.1975, Síða 54

Kirkjuritið - 01.04.1975, Síða 54
Uppeldishlutverk fjölskyldunnar hef- ur og tekið miklum stakkaskiptum. Hún er nú langt í frá allt að því einráð á því sviði, eins og hún áður var. Breytt- ir atvinnuhættir ráða hér einnig miklu, t. d. vinna hvors tveggja íoreldris utan heimilis, en einnig auknar menntun- arkröfur, sem ekki er á valdi fjölskyld- unnar að fullnægja. Ábyrgð á uppeldi vaxandi kynslóðar er þá í síauknum mæli falin uppeldisstofnunum, skólum og barnaheimilum, en það vekur at- hygli, að æ meiri áherzla er nú lögð á uppeldishlutverk skólans, sbr. grunn- skólalögin nýju. Þessi ríka áherzla seg- ir sína sögu um veikari stöðu fjölskyld- unnar á þessum vettvangi. Þá má nefna verndarhlutverk fjöl- skyldunnar, sem einn þátt fjölskyldu- lífsins, sem breytzt hefur verulega. Áð- ur var ekki í önnur hús að venda en í skjól fjölskyldunnar, ef á bjátaði. Nú er hins vegar að rísa af grunni vel- ferðarsamfélag, sem leysir fjölskyld- una af hólmi í þessu tilliti með al- mannatryggingum, sjúkra- og velferð- arstoínunum af ýmsum gerðum, og félagslegri ráðgjöf. Aðrar breytingar á hlutverki fjöl- skyldunnar liggja einnig í augum uppi, svo sem á vettvangi hvíldar og upp- lyftingar, en þar hefur öflugur afþrey- ingariðnaður, m. a. sjónvarp, höggvið stórt skarð í hlutverk fjölskyldunnar. Ekki er úr vegi að nefna að lokum trúarlegt hlutverk fjölskyldunnar. Á þessu sviði fjölskyIdulífs hafa og orð- ið miklar breytingar. Heimilisguðrækni er óvíða lengur stunauð og trúarlegt uppeldi barna hefur að verulegu leyti flutzt yfir á skólann og sunnudaga- skóla kirkjunnar. Þær breytingar á stöðu og hlutverki fjölskyldunnar, sem hér hafa verið raktar, eru eins og aðrar meiri háttat breytingar í samfélaginu næsta aug- Ijósar. Menn greinir vafalítið á um ágæti þeirra, en til þess að meta það, er nauðsynlegt að hafa gát á fjöl- mörgum atriðum. Flestir munu þó vera sammála um, að mörgu hafi verið breytt til góðs. Má þar fyrst nefna stór bætt heilsufarsástand fjölskyld- unnar, bættan húsakost, stór bætta möguleika til öflunar menntunar við hæfi hvers og eins auk efnalegrar vel- sældar, sem þrátt fyrir allt bölsýnis- tal um ástand efnahagsmála, er vel á veg komin að útrýma fátækt í þeirri merkingu orðsins, sem fjölskyldur genginna kynslóða þekktu af biturri reynslu. En þrátt fyrir augljós bætt ytri skil' yrði fjölskyldunnar til farsældar, er engan veginn jafn augljóst, að innan vébanda hennar þróist fegurra mann- líf en áður var. Ræður í því efni tví- mælalaust miklu, að siðferðisstyrkur manna hefur ekki vaxið að sama skapi og bætt lífskjör. Það kann að hijóma þverstæðu- kennt, en svo virðist sem bættur hagur auki á óánægju manna með hlutskipti sitt í lífinu. Ein skýring á því fyrirbæri virðist nærtæk, en hún er sú, að síauk- in sölumennska neyzlusamfélagsins grundvallast á því að halda að mönn- um þeim boðskap, að það, sem þein búa við, sé þeim ónógt. Siðferðis- styrkur er samansettur úr ýmsum þátt- um, en veigamikill þáttur er vafalítið sá eiginleiki að kunna sér hóf, að hafa þrek til þess að veita viðnám gegn tafarlausri fullnægingu nýrra og nýrra 52
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.