Kirkjuritið - 01.09.1975, Blaðsíða 7
Kristilegi Þjóðarflokkurinn
Einn hinna mörgu Norðmanna, sem gistu ísland vegna norræna
kristilega stúdentamótsins, er frú Ragnhild Solli, en maður hennar,
Einar Solli, er aðalframkvæmdastjóri hins kristilega stúdentafélags
í Noregi. Þau hjónin stýrðu umræðuhópi um kristið heimili og
kristið barnauppeldi á mótinu. Ragnhild er kennari að mennt, en
hefur hin síðari ár snúið sér að stjórnmálum. Hún hefur átt sæti í
borgarstjórn og fræðsluráði Oslóborgar undanfarin ár, frá 1971, og
á síðasta flokksþingi Kristilega þjóðarflokksins var hún kjörin vara-
formaður flokksins. Einar og Ragnhild Solli eiga sex börn á aldrinum
6 til 21 árs og þekkja því vel vandamál heimilislífsins. Þess má
9eta að yngsta barn þeirra er vanþroskað frá fæðingu. íslenzkir
lesendur kynnu að hafa áhuga á að heyra skoðanir þessarar merku
konu á ýmsum málum.
~~ Hvers vegna var kristilegi þjóðar-
^okkurinn stofnaður?
"7 Vegna Þess að kristnum mönnum
Þóttu þeir flokkar, sem fyrir voru ekki
bera hin kristnu verðmæti fyrir brjósti
°9 fannst að þeim tækist ekki að
k°ma fram kristnum hugsjónum með
^östoð hinna gömlu flokka. Þeir sáu
bví að lokum enga aðra leið en að
st°fna sérstakan flokk, sem átti tilveru-
rett sinn vegna hinna kristnu verð-
[nasta. Þetta varð árið 1933 í Vestur-
Noregj.
til eftir síðasta stríð mun flokk-
Ur'nn hafa verið litill þrátt fyrir það að
^iog margir Norðmenn eru kristnir.
Ver er skýringin á þvi?
ijós
Mörgum kristnum mönnum var ekki
nauðsyn á kristnum áhrifum. —
var eðlileg afleiðing af vexti flokksins.
Stjórnmál voru svo veraldleg. Kristnir
menn höfðu áður dreift sér á hina
flokkana og enn eru mjög margir
kristnir menn félagar í þeim. Ég tel að
eitt af því góða, sem Kristilegi þjóðar-
flokkurinn hefur komið til vegar sé að
hinir flokkarnir hafa í auknum mæli
sett kristna menn í ábyrgðarstöður og
einnig lagt ríkari áherslu á mál er
varða lífsskoðun. Baráttan um kristin
grundvallaratriði hefur oft harðnað og
kallað á virkari afstöðu kristinna
manna.
— Hver eru þau mál, sem flokkurinn
hefur lagt mesta áherslu á?
— Frá upphafi lagði flokkurinn mesta
áherslu á menningarmál og skólamál.
Það er fyrst hin síðari ár, sem við
höfum snúið okkur að fjármálum. Þetta
165