Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 8
Ragnhild Solli
Við fengum fleiri þingmenn og urðum
virkari í öllum málaflokkum og um
leið óx áhuginn fyrir þeim. Þátttaka í
ríkisstjórn hefur haft aukin áhrif í
þessa átt. Undanfarin ár hafa verið
samþykkt mörg ný skólalög, og það
hafa staðið miklar deilur um stöðu
kristninnar innan skólans. í síðustu
grunnskólalöggjöfinni er kveðið á um,
að hann skuli vera á kristnum grunni,
en svo er ekki í löggjöfinni um fram-
haldsskólana frá því í vor né í löggjöf-
inni um leikskóla og þarnaheimili. Það
hafði verið deilt hart um þessa skóla
og við litum á þetta sem ósigur. En
það munaði afskaplega litlu, þegar til
atkvæðagreiðslu kom. En baráttan
heldur áfram og sveitarfélögin ráðahér
miklu sjálf. Æskulýðssamtök flokksins
hafa stuðlað mjög að víðtækari og
djúphugsaðri stefnumörkun flokksins.
Þannig var það einnig í atkvæða-
greiðslunni um frjálsari fóstureyðing-
arlöggjöf. Lögin, sem við börðumst
á móti voru samþykkt með aðeins eins
atkvæðis meirihluta.
Telur þú að þar með sé fóstureyðinga-
málið afgreitt og gleymt?
— Nei, ég tel að það muni verða tek-
ið upp að nýju svo framarlega sem
þingmannahlutfallið breytist í stórþing'
inu. Þá verður líka hægt að breyta
þessum lögum aftur. Þetta mál hefur
náð langt út fyrir þingsalina. M. a. fór
fram undirskriftasöfnun. Það var rök-
rætt óhemjumikið, og Per Lonning.
biskup, sem tekið hafði mikinn þátt í
baráttunni, sagði af sér þegar málið
tapaðist. Gallup skoðanakannanii"
sýna, einnig eftir að nýja löggjöfia
kom, að meirihluti þjóðarinnar er a
móti frjálsum fóstureyðingum.
— Kristilegi þjóðarflokkurinn telW
lýðræðið vera besta stjórnarformið■
Telur þú hinn almenna borgara hafa
nægan lýðræðisþroska og hve mikið
vald hefur hann?
— Þetta er alvarleg sþurning. Það
liggur í augum uppi að lýðræði er
stjórnarform, sem krefst mikils af borg'
aranum. Það krefst þess að öll þjóðih
haldi pólitískri vöku sinni. Ástandið
hefur batnað. Áhugaleysið var miklu
meira áður meðal almennings enda
hafði þá einn og sami flokkurinn ríkt
árum saman. Stjórnarandstaðan virtist
hafa lítil áhrif. Við stjórnarskiptin, seh1
urðu á byrjun sjöunda áratugsias
vaknaði áhugi fólks.
Hversu mikið tækifæri einstakling'
urinn hefur til að ná áhrifum með orð'
um sínum og skoðunum er annað mál
166