Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 10
fremur f öllu talinu um frjálslegt barna-
uppeldi, um hi5 góða í barninu og að
ekki megi leggja neinar hömlur á
barnið. Almenningur hefur tileinkað
sér mikið af uppeldisfræði og sálfræði,
en misskilið margt, og nú þorir eigin-
lega enginn að segja að eitt sé rangt
og annað rétt.
Það er skiljanlegt að ofbeldi for-
eldra gagnvart börnum hafi aukist, því
að þeir hafa ekki þorað að aga börn
sín á réttan hátt og að lokum endar
það með örvæntingu og ofbeldi, þegar
þeir ráða ekki lengur við neitt. Vanda-
málið er erfiðara í dag en áður, þegar
heimilin voru stærri og þ. á m. afi
og amma, se mveittu stuðning við upp-
eldið.
— / borgar- og iðnaðarsamfélagi nú-
tímans er hin litla fjölskylda meira
ein með vandamál sín. Hvað telur þú
að við getum gert til hjálpar?
— Þetta er erfitt mál, sem er mér þó
mjög hugleikið. Þetta fólk getur feng-
ið peninga, ef um fjárhagserfiðleika
er að ræða, en það þarf miklu fremur
hjálp reyndara fólks. Þetta er mál,
sem við vinnum nú að í Kristilega
þjóðarflokknum. Við viljum stuðla að
almennum námskeiðum um heimilið
og hjónabandið. Það er þar, sem flest-
ir bíða skipbrot sitt. Það hefði ekki
þurft að gerast, ef þeir hefðu vitað
hvernig bregðast skyldi við ýmsum
einföldum vandamálum. Fólk trúir á
einhverja glansmynd af hamingjusömu
og skuggaiausu heimili, og þegar því
tekst ekki að mynda slíkt heimili þá
þorir það ekki að játa það og leita
ráða fyrr en um seinan. Fjölskyldumál
eru sannarlega í sviðsljósinu og Kristi-
legi þjóðarflokkurinn hefur nýlega gef-
ið út sérstaka álitsgerð um þennan
hornstein þjóðfélagsins. „Familien i
dagens samfunn". — Fjölskyldan í
nútíma samfélagi. — Ég er nú annars
ekki hér á mótinu til að gera grein
fyrir sjónarmiðum Kristilega þjóðar-
flokksins. Hér fjöllum við um þessi
mál í dálítið takmarkaðri ramma með
það í huga að hjálpa ungu fólki til að
undirbúa og eiga heimili á kristnum
grunni.
— Hvaða afstöðu hafið þið i Kristi-
lega þjóðarflokknum tekið til hinna
stóru kristilegu flokka i katólsku lönd-
unum eins og V-Þýzkalandi og ítaliu?
— Við viljum ekki að menn jafni okk-
ur við þessa flokka. Þó höfum við að
sjálfsögðu nokkurt samband við þá-
Flokkarnir á Norðurlöndum vinna aftur
á móti mjög mikið saman.
— Er ekki erfitt að vera kristinn
stjórnmálamaður. Er ekki hætt við að
starf stjórnmálamannsins rekist oft
á kristna samvisku hans?
— Stjórnmálin eru list hins mögulega-
Við erum oft tilneydd að fallast á mála-
miðlun, sem er okkur ekki að skapi-
Mælikvarðinn verður þá að vera hvort
þessi málamiðlun færir okkur nær hihu
æskilega takmarki, en það verður að
hafna málamiðlun, sem gengur í ber-
högg við kristin viðhorf. Kristilegi
þjóðarflokkurinn hefur sýnt fram á,
að það er hægt að reka heiðarlega
kristna pólitík.
Gísli Friðgeirsson,
menntaskólakennari skráði-
168