Kirkjuritið - 01.09.1975, Síða 19
inn, hvörs vegna boðar eru ekki eigin-
lega nema við landið. Þó mætti máske
nefna þessa: a) Kötulnesboða, skammt
fyrir utan Höfn. b) Lönguboða neðan
Skeggjastaði og c) Bökuboða út af
Þorvaldsstöðum. En meðal skerja
þessi: a) Dritsker, skammt frá landi
norðan Viðvík. a) Róðrarstapi undir
Viðvíkurbjörgum og c) Stapa undir
Skeggjastaðarklifum.
19. Straumvötn. Af rennandi vötn-
um eða ám vil eg hér telja:
1) Fossá, sem er lítil spræna á tak-
mörkum sóknarinnar að norðan,
rennur móti austri og steypist með
beinum fossi fram af bjargi í sjó.
2) Geysirófa, hefir upptök sín úr svo
nefndum Skörðum og Vatnadal,
ogsvo smáá, rennur móti austri í
krókum í Finnafjörð norðan verð-
an.
3) Finnafjarðará, kemur að nokkru
leyti úr Krókavatni í Fellsheiði og
kallast þá Krókavatnsá, (og) að
nokkru leyti framan af Hallgils-
staðaheiði sunnanverðri. Þetta er í
raun réttri lítil á með grjótfarvegi,
en verður þó illreið í vatnavöxtum.
Vöð eru á henni á Hallgilsstaða-
heiðarvegi og við sæ, bæði óhætt,
þegar áin er ekki í því meiri vexti,
fellur í Finnafjarðarbotn.
4) Saurbæjará kemur úr Saurbæjar-
vatni þar í heiðinni og rennur á
móti hafi við Saurbæ í Finnafjörð.
Þetta er ogsvo smáá með grjót-
farvegi og vöðum nærri hvar sem
vlll, nema í vatna og rigningar-
vöxtum.
®) Kverká, sprettur upp norðan undir
áður nefndum Arnarfjöllum og fell-
ur móti norðaustri I Miðfjarðará á
milli Miðfjarðarnessels og Kverk-
ártungu. Þessi á fellur þegar ofan
eftir dregur I djúpu gili og er þess
vegna ill yfirferðar, en er til lukku
framan allan alfaraveg.
6) Miðfjarðará er hið stærsta vatns-
fall I sveitinni og fellur alveg móti
hafi í Miðfjarðarbotn. Hún dregst
saman úr áður nefndri Kverká og
mörgum lækjum úr heiðinni að
austan og vestan, en hefir sín eig-
inlegu upptök í Vopnafjarðaraf-
réttum, hvört pláss kallast Mið-
fjarðarárdrög. Hún rennur víðast
út undir byggð í djúpu gili, en ekki
eiginlega gljúfrum. Þó eru í henni
fossar tveir. Heitir annar Sniðfoss,
en annar Fálkafoss. Báðir eru þeir
sagðir beinir. Undan Miðfjarðar-
nesseli og þar fyrir utan eru á
henni nokkur vöð, á hvörjum hún
er meira eða minna ströng og
grýtt. Hún er oft óreið mikinn part
sumars, hvörs vegna lögferja er á
henni undan Miðfirði.
7) Hölkná kemur norðan undir Há-
gang úr svo nefndum Hölknárlón-
um, sem eru f rauninni nokkrar ó-
merkilegar smátjarnir. Hún fellur
hér um bil beint út til sjávar —
sumstaðar í nokkrum gljúfrum —
á milli Miðfjarðar og Djúpalækjar.
Á henni eru nokkur vöð, af hvörj-
um svo nefnt Rauðhólavað er al-
gengast, sem er óhætt, nema þeg-
ar hún er í vexti, þá er betra vað
nokkru neðar.
8) Djúpilækur neðan bæinn, sem af
honum tekur nafn, kemur þar ofan
úr heiðinni og verður næstum
óreiður í vatnavöxtum.
9) Staðará, sprettur upp norðan undir
177