Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 45

Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 45
athugunar og endurnýjunar við. „Lög um kirkju- og manntalsbækur (sálnaregistur)" eru lög nr. 3 frá 12. januar 1945. Lög þessi kveða á um skyldur sóknarpresta til að „færa kirkjubók (mínisteríalbók) og mann- talsbók (sálnaregistur) fyrir allt presta- kalliS. Auk þess skulu sóknarnefndar- formenn í hverri sókn færa slíkar bæk- ar, að því er til sóknarinnar tekur og Qeyma þeirra.“ Þetta síðast talda atr- iði um hlutverk sóknarnefndarfor- aianns í sambandi við færslu kirkju- bóka mun ekki vera virt, og eru kirkju- baskur að jafnaði ekki færðar í tvíriti. ^tti þess og að vera minni þörf nú, Þegar allar upplýsingar, sem þær 9eyma, eru sendar annað hvort Hag- stofu eða Biskupsstofu. Samkvæmt lögum þessum skal kirkjustjórn sjá um, „að ávallt sé kost- Ur á hentugum kirkju- og manntalsbók- UlT>“, og skal hún ákveða form þeirra. Form kirkjubóka þarf örugglega endurskoðunar og athugunar við. Svo er einnig með skýrsluform og skýrslu- söfnun kirkjunnar yfirleitt. Starfshátta- nefnd hefur gert ráðstafanir til að fá Sendar upplýsingar um skýrsluform Presta og kirkna frá hinum Norður- löndunum. þá skal þess getið hér, að fyrir n°kkrum árum var skipuð nefnd þr'ggja presta til að athuga þessi mál. Ekki er fullkunnugt um störf og tillögur Peirrar nefndar, en þess er að vænta, hún skili senn áliti. Naest skal vikið stuttlega að lögum nr- 36 frá 16. nóvember 1907. En það f"ru lög ,,um skipun sóknarnefnda og héraðsnefnda.” Mörg ákvæði þessara laga eru enn þá virk í reynd. Svo er til dæmis um kosningu safnaðarfulitrúa og sóknar- nefnda og um skyldur þeirra. Lögin þurfa hins vegar athugunar og endur- nýjunar við, enda brýnt að slíkum lög- um sé sniðinn sá búningur, er feliur að þörfum kirkjunnar á hverri tíð. Ó- eðlilegt virðist, að sóknarnefndir séu kosnar til sex ára. Þá mættu sóknar- nefndir gjarnan hafa meira aðhald en nú er. Til álita kemur að setja þeim erindisbréf, ekki síður en skólanefnd- um. Nauðsynlega vantar fræðslu og leiðbeiningar fyrir sóknarnefndir, safn- aðarfulltrúa og meðhjálpara. Eðlilegt sýnist að koma á fót námskeiðum fyrir þessa starísmenn kirkjunnar, t. d. inn- an hvers prófastsdæmis. Samkvæmt 7. grein þessara laga skal sóknarnefnd „stuðla til þess, að guðsþjónusta safnaðarins fari sómasamlega fram, vera prestinum til aðstoðar í því að viðhalda og efla góða reglu og sið- semi í söfnuðinum, styðja með honum kristindómsfræðslu ungmenna og vera honum samhent um að halda uppi samiyndi og friðsemi á heimilunum og meðal allra í söfnuðinum.“ Eigi sókn- arnefnd að geta sinnt þessu hlutverki að einhverju marki, hlýtur hún að þurfa til þess leiðbeiningar. Yfirleitt munu sóknarnefndir ekki geta rækt þetta starf, enda misjafnlega vel til þess fallnar. 17.—20. grein téðra laga fjalla um héraðsfundi, hlutverk þeirra, skyldur prófasta þar að lútandi og fleira. Stöðu, hlutverk og völd héraðs- funda þarf að afmarka nánar en nú er. Þeir þurfa að vera virkt og lifandi 203

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.