Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 47

Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 47
uð muni vera misjafnt, hvernig lögin eru virt og hvað fólk veit yfirleitt um þau. Ástæða er til að ætla, að margt fólk viti næsta lítið um þessi lög og forystumenn kirkjunnar og ef til vill lögreglustjórar hafi brugðizt upp- iýsingaskyldu sinni í þessum efnum. Hér eins og víða annars staðar þurfa a5 koma til almennar upplýsingar og fræðsla. Sjálfsagt er að endurskoða lögin um almannafrið á helgidögum Þjóðkirkj- unnar, en þau má alls ekki nema úr gildi. Lögin veita mikið aðhald og auka virðingu fyrir rétti kirkjunnar, jafnvel þó að þau hafi verið brotin, enda hefur það oft verið gert vegna ókunnugleika. Tímarnir breytast og kalla á breytt 'ög og breyttar reglur, en alls ekki á iagaleysi. Nútímalíf þarf ekki síður en i'f fyrritíðarmanna að lúta ákveðnum reglum, boðum og bönnum, jafnt í þessum efnum sem öðrum. 1 sambandi við áður greind lög skal minnt hér á „tilskipun um tilhlýðilegt öelgihald sabbatsins og annarra helgra daga á íslandi“ frá 29. maí 1744. Tvær ðæinar þessarar tilskipunar, sú 4. og 16-, eru enn í gildi. Á þetta reyndi fyrir n°kkrum árum, er Dóms- og kirkju- ^álaráðuneytið lýsti 4. greinina í fullu 9'ldi með bréfi til biskups, dags. 7. apr'• 1970. Grein þessi fjallar um það, a5 enginn prestur megi, nema brýna nauðsyn beri til, „undanfella guðs- PJónustugerð í kirkjunni einn sunnu- da9- miklu síður tvo eða þrjá sunnu- da9a hvern af öðrum.“ Ef nokkur Prestur vanrækir þannig söfnuð sinn, ’-skal honum talast til fyrir það af pró- astinum. Og ef þvílíkt hirðuleysi finnst Ja Prófastinum," skal lögsækja hann. Hin grein þessarar tilskipunar, sem enn er í gildi, fjallar um það, að kirkj- unum skuli halda hreinum og rúmgóð- um á sunnudögum og megi hvorki þá daga né aðra í þeim „finnast fatnaður eður sængurklæði, góss eður vara, hneykslislegar myndir, eða þær, sem stríða móti þeirri evangelisku religion, með því að slíkt er óviðurkvæmilegt og ekki samhljóðandi við þau heilögu verk, sem þar eiga fram að fara.“ Þá má engin „annarleg höndlan hafast um hönd í kirkjunni." Þrátt fyrir þessa tilskipun, er það vitað, að margir prestar fella niður guðsþjónustur of marga helgidaga árs- ins og eru ekki í þeim efnum beittir þeim aga, sem nauðsynlegur hlýtur að teljast, ef virðing embættisins og þjón- usta kirkjunnar á ekki að bíða tjón af. Þá er það og vitað, að hirðing og viðhald margra kirkna er ekki sem skyldi, og af þeim sökum hljóta þær ekki þann sess að vera helgidómur í vitund uppvaxandi kynslóðar. Ég hygg, að báðar þessar ástæður eigi meðal annars sinn þátt í því að draga úr virðingu fólks fyrir lögunum um almannafrið á helgidögum Þjóð- kirkjunnar. 8. Á árinu 1931 voru sett mörg lög um kirkjumál, og eru flest þeirra enn í gildi. Verður nú vikið að einum þeirra, en það eru lög nr. 17 frá 6. júlí þetta ár, og fjalla þau „um bókasöfn presta- kalla.“ Lögin kveða á um það, að stofna megi bókasöfn fyrir prestaköll með bókagjöfum og bókakaupum. Sóknarprestar skulu fyrir lok júnímán- aðar ár hvert senda bókanefnd presta- kalla skrá yfir þær bækur, er þeir óska 205

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.