Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 51

Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 51
Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um veitingu lána úr sjóðnum. Stjórnin er undir forystu biskups, en auk hans skipa stjórnina tveir menn, er kosnir skulu af Synodus til þriggja ára í senn. Lögin um kirkjubyggingarsjóð voru mikil réttarbót fyrir Þjóðkirkjuna, en fullnægja þó hvergi þörfum hennar í Þessum efnum í dag. Og er þar eink- um um að kenna tregðu og naumlæti nkisvaldsins. Ríkisvaldið verður að efla þennan sjóð og auka stórlega stuðning við kirkjubyggingar í landinu, enda er það einn þátturinn í því að halda ákvæði stjórnarskrárinnar um að styðja og vernda Þjóðkirkjuna. 12. Mun ég nú gera nokkra grein fyrir lögum ,,um kirkjuþing og kirkjuráð ís- lenzku Þjóðkirkjunnar." Það eru lög nr- 43 frá 3. júní 1957. En áður en ég v'k að sjálfum lögunum, þykir mér rétt aö gera lítillega grein íyrir forsögu Þeirra. Kirkjumálanefnd, sem starfaði á fyrstu árum þessarar aldar, — mun hafa verið skipuð 1904, — samdi frum- Varp til laga um stofnun kirkjuþings, en ráðherra íslands sá sér ekki fært leggja það fyrir Alþingi. Samkvæmt frumvarpi þessu var gert ráð fyrir því, aÖ sett yrði á stofn kirkjuþing, skipað 24 mönnum, og skyldi það koma sam- an Þriðja hvert ár. h’á ber að geta þess, að árið 1931 yoru sett lög um kirkjuráð. Voru þau lög undanfari þeirra laga, sem hér er Urn fjallað, og mikil réttarbót á sínum fíma. i þessum lögum sagði meðal annars svo: „Verkefni kirkjuráðs er að Vlnna að eflingu íslenzkrar kristni og styðja að trúar- og menningaráhrifum Þjóðkirkjunnar með því að: a) íhuga og gera ályktanir um þau mál, sem varða Þjóðkirkjuna í heild sinni og einstaka söfnuði hennar. b) Stuðla að frjálsri starfsemi til efl- ingar kristnilífi þjóðarinnar, mann- úðar- og líknarstarfsemi. Þá vek ég athygli á einum þýðingar- miklum þætti, sem er í þessum lögum varðandi vald kirkjuráðs. Þar sagði: Kirkjuráð hefur ,,rétt til að kjósa einn mann til að taka þátt í stjórn kirkju- legrar starfsemi í sambandi við út- varp.“ Hér var um mjög mikilvægt og stefnumarkandi ákvæði að ræða, sem kirkjan hefur því miður misst niður og ekki er að finna í núgildandi lögum. í greinargerð með frumvarpinu um kirkjuráð frá 1931 segir m. a.: ,,Því hefur einatt verið kastað fram, að kirkj- an fylgist ekki með þróun þjóðlífsins sem skyldi. Mjög mikill hluti starfs hennar yrði því vegna úreltra starfs- hátta og skipulags að minna gagni en vænta mætti og að kirkjan sé áhuga- lítil í aðalstarfi sínu í að styrkja og þroska trúar- og siðferðislíf þjóðarinn- ar. Orsök þessa er m. a. talin liggja í starfsháttum hennar og skipulagi. Engin stofnun þolir að standa í stað, að því er kemur til starfshátta og skipulags. Það, sem slíkt kirkjuráð ætti að geta komið til leiðar og stutt að, verður einkum: 1) Að kirkjuleg löggjöf væri betur undirbúin og athuguð. 2) Að sameina starfsáhugann innan kirkjunnar. 3) Að leikmenn fengju betra tækifæri 209

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.