Kirkjuritið - 01.09.1975, Síða 53
Meö lögunum um stofnun kristni-
sjóðs var stigið þýðingarmikið fram-
faraspor og kirkjunni fengið í hendur
nokkurt fjárhagslegt sjálfsforræði, sem
tvímælalaust mun hafa gifturík áhrif
fyrir starf hennar og þjónustu í nútíð
og framtíð.
Stofnfé kristnisjóðs var: a) Kirkju-
jarðasjóður, sem lagður var niður með
lögunum, b) Andvirði kirkjujarða,
annarra en prestssetursjarða, sem
seldar verða eftir gildistöku laga þess-
ara, c) Prestakallasjóður, sem lagður
var niður og rann að fullu inn í Kristni-
sjóð.
Helztu tekjur Kristnisjóðs eru þess-
ar: a) Arður af stofnfé, b) Árlegt fram-
>ag úr ríkissjóði, er samsvarar há-
^arkslaunum presta í þeim presta-
köllum, sem lögð voru niður með lög-
Ur>um, c) Laun þau, sem sparast á
överjum tíma, þegar prestakall er
Prestslaust, svo að ekki kemur til
Qreiðslu prestslauna eða hluta þeirra,
°9 skal þá miðað við hámarkslaun
Presta.
þegar lög þessi eru að fullu komin
framkvæmda, verða tekjur Kristni-
S|óðs verulegar. Þannig mundu tekjur
hans vegna prestakallanna 15, er lögð
v°ru niður með lögunum, nema kr.
16.158.240,00 á ársgrundvelli miðað
Vlð laun nú, samkvæmt úrskurði Kjara-
Póms frá 4. júní 1975. En þess ber að
9eta, að hluti þessara tekna gengur til
a°knarpresta vegna þjónustu þeirra í
'num niðurlögðu prestaköllum.
1 'ögunum er fjallað í átta liðum um
lutverk Kristnisjóðs. Þar segir meðal
annars, að hlutverk sjóðsins skuli vera:
”Að launa aðstoðarþjónustu presta og
ðuðfræðinga í víðlendum eða fjöl-
mennum prestaköllum." „Að launa
starfsmenn, sem ráðnir eru til sér-
stakra verkefna í þágu Þjóðkirkjunnar
samkvæmt ákvörðun kirkjuþings." ,,Að
styrkja söfnuði, er ráða vilja starfs-
menn til starfa á sínum vegum á sviði
æskulýðsmála, líknarmála eða að öðr-
um mikilvægum verkefnum.“ ,,Að veita
fátækum söfnuðum starfsskiiyrði, eink-
um á þeim stöðum, þar sem prestaköll
hafa verið sameinuð og kirkjuleg þión-
usta er sérstökum erfiðleikum háð.“
,,Að styðja hvers konar starfsemi kirkj-
unnar til eflingar kristinni trú og sið-
gæði með þjóðinni, svo sem útgáfu á
hjálpargögnum í safnaðarstarfi og
kristilegu fræðsluefni, enn fremur fé-
lög og stofnanir, sem vinna að mikil-
vægum verkefnum á kirkjunnar veg-
um“.
Hefur nú verið gerð grein fyrir helztu
ákvæðum laganna um hlutverk sjóðs-
ins. Eðlilegt virðist, að þar sem tekjur
Kristnisjóðs byggjast að mestu leyti
á fækkun prestakalla í strjálbýli, þá
verði nokkrum hluta af tekjum hans
varið til stuðnings og eflingar kirkju-
legu starfi og þjónustu í striálbýlinu.
Kristnisjóður mun tvímælalaust
verða til mikils stuðnings fyrir líf og
þjónustu kirkjunnar í heild, bæði á
vorum dögum og á komandi tíð. En
til álita kemur að setja í reglugerð
nánari ákvæði um hlutverk sjóðsins og
framkvæmd laga þessara.
IV. Niðurlagsorð
Er þá lokið við að gera grein fyrir
nokkrum þáttum, er taka til lagalegrar
stöðu íslenzku Þjóðkirkjunnar. Þess er
211