Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 69

Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 69
barizt fyrir vígslu kvenna, a5 kvenrétt- indi komi þessu máli ekkert við og með öllu sé ósæmilegt að draga það atriði inn í þessa baráttu. Gregori Vins Fréttir hafa borizt af því, að fimm konur, sem nýlega voru látnar lausar úr fangelsi í Sovétríkjunum — í til- efn kvennaárs — hafi beðið um, að baptistapresturinn Gregori Vins verði látinn laus úr fangelsi. Hann var hnepptur í fangelsi fyrir að hafa boðað trú með ,,ólögmætum“ hætti. Mál hans vakti mikla athygli á Vesturlöndum í fyrra. Alkirkjuráðið mótmælti réttar- höldunum yfir Gregori Vins. Konurnar fimm höfðu verið hnepptar í fangelsi, þegar KGB íögreglan íann leynda prentsmiðju, sem þær störfuðu í. Prentsmiðjan var á vegum neðan- jarðarkirkju baptista og prentaði krist- in trúarrit. Konurnar hafa sýnt mikið hugrekki með þessari beiðni og áskor- un um frelsi Gregori Vins og eiga yfir höfði sér fangavist að nýju. Lútherska kirkjan í Chile Skýrt hefir verið frá því í stöðvum Alkirkjuráðsins í Genf, að Lútherska kirkjan í Chile eigi í miklum erfiðleik- um. Miklar og vaxandi árásir eru á lútherska biskupinn, Helmut Frenz, Prestana og söfnuðina, vegna aðstoð- ar þeirra við fanga og flóttamenn og vegna stuðnings þeirra við mannrétt- lnbi- í Chile hafa „vissir hópar“ kraf- l2t þess, að biskupinum og prestunum verði vísað úr landi. Þetta merkir það, að söfnuðurnir yrðu forstöðulausir. Al- kirkjuráðið hefir skorað á aðildar- kirkjur að styðja Lúthersku kirkjuna í Chile með öllum tiltækum ráðum. Lambeth-þing árið 1978? Umræður hafa farið fram í ráðgjafar- nefnd ensku kirkjunnar um það hvort halda skuli Lambeth-þing árið 1978 eða síðar. Ákvörðun um þinghaldið tekur erkibiskupinn í Kantaraborg að fenginni nauðsynlegri ráðgjöf. Kostn- aður við þinghaldið yrði geysimikill. Lambeth-þingið er samkoma bisk- upa anglikönsku kirkjunnar hvaðan- æva úr heiminum. Þessi þing hafa jaínan verið haldin á tíu ára fresti. Ýmsum biskupum annarra kirkjudeilda hefir verið boðið á þing þessi til áheyrnar. Biskupi íslands hefir verið boðið á einhver þessara þinga. Umræðuefni næsta þings eru ekki ráðin, en töluverð áherzla hefir verið lögð á að ræða hlutverk biskupa nú á dögum. Sennilegt þykir og, að rætt verði um vígslu kvenna til prestsþjón- ustu. Árið 1968 sóttu 462 biskupar Lamb- eth-þingið en nokkrir gátu ekki sótt það, vegna þess að stjórnvöld landa þeirra bönnuðu þeim för til þingsins eða hindruðu með öðrum hætti. Frá Finnlandi Tveir nýir biskupar tóku við embætt- um í Finnlandi á síðasta ári. Dr. theol. Yrjö Sariola var vígður til biskups í 227

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.