Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 70
Lapuastifti, en Paavo Kortekangas,
prófessor í kirkjufélagsfræðum við
háskólann í Helsingfors, tók við Kuo-
piostifti. — Skipun þess síðar nefnda
hefur vakið talsverða athygli og deilur,
þar eð gengið var þar fram hjá öðru
biskupsefni, er fleiri atkvæði hafði
fengið við kjör. Óttast margir, að hér
sé um að ræða pólitíska veitingu, því
að altalað er, að Kortekangas sé
hneigður að sósíalisma, þótt hann lýsi
yfir því, að hann sé óháður flokkum
í stjórnmálum. — Hann var skipaður
af forseta að undangenginni atkvæða-
greiðslu ríkisstjórnar, en þar fékk
hann níu atkvæði af fjórtán greiddum.
Er þess nú beðið með eftirvænting
að sjá, hvort biskupinn muni láta
stjórnmálamenn segja sér fyrir verk-
um. —
Stjórnmál komu einnig mjög til um-
ræðu í Finnlandi við kosningar í safn-
aðarráð og aðrar kirkjulegar nefndir
á síðasta ári. Stjórnmálaflokkarnir
höfðu talsverð afskipti af undirbúningi
kosninganna, enda er þeim það heim-
ilt að lögum. — Kosningaþátttaka varð
þó mjög lítil, svo að Ijóst þykir, að
flokkastjórnmál séu ekki vinsæl á þeim
vettvangi.
Miklar umræður hafa farið fram um
það í Finnlandi að undanförnu, hvort
unnt sé að samrýma marxistíska hug-
myndafræði kristinni guðfræði og
prestsþjónustu í kristinni kirkju. —
Deilur um guðfræSi o. fl.
Einn hinna yngri prófessora við guð-
fræðideild Háskólans í Helsingfors,
Heikki Ráisánen, vekur talsverðar deil-
ur um þessar mundir. Þykir hann
býsna róttækur í skoðunum á Nýja
testamentinu og túlkun þess. — Á síð-
ari árum hafa öðru hvoru heyrzt raddir
um nauðsyn á að stofna guðfræði-
skóla á vegum kirkjunnar, óháðan rík-
isháskólanum, og yrði sá skóli þá
prestaskóli safnaðanna. Hafa sumir
biskupar landsins lagt þetta til m. a.
— Deilurnar, sem Ráisánen hefur
vakið kynnu að herða á stofnun slíks
guðfræðiskóla. —
Trúarlíf er viða mjög öflugt og blóm-
legt í Finnlandi eins og áður, — þótt
naumast verði talað um mjög um-
fangsmiklar vakningar. — Þó hefur
áhugi fyrir kristinboði farið mjög vax-
andi hjá fjölda manna á síðustu ár-
um. —
Vladimir Maximov
Einn þeirra manna, er sovésk stjórn-
völd hafa vísað úr landi að undan-
förnu, er Vladimir Maximov, liðlega
fimmtugur rithöfundur, náinn vinur
Soltsenitsyns, en miður kunnur. Þó er
það mál sumra manna, að hann muni
verða víða kunnur um síðir, en bækur
hans hafa lítt verið þýddar á erlenda
tungu fram til þessa.
Norska blaðið ,,Aftenposten“ birti
samtal við Maximov ekki alls fyrir
löngu. Ræðst hann þar mjög einbeitt-
ur gegn alræðinu í Sovétríkjunum og
segir m. a.: ,,Það er nauðsynlegt, að
vér færum hvað eina fram í fulla aug-
sýn, — allan sannleikan, allt, sem vér
vitum um brot á mannréttindum, öll
dæmi um misvirðing manngildis og
skerðings mannlegs frelsis. Allt þetta
verður að koma í dagsljósið.
228