Kirkjuritið - 01.09.1975, Qupperneq 82
Mesti vandi okkar nú á dögum, er
við lesum frásagnir sköpunarinnar í
heimi. sem er svo geysilega breyttur,
er sá, að finna túlkunaraðferð, sem
sambœrileg er sköpunarsálmunum í
Biblíunni, sem gefi til kynna trú okkar
og birti jafnframt mikilvcegi játningar
okkar. ,,Ég trúi því, að Guð hafi skap-
að mig og alla hluti". En þessa mynd
tjáningar hefir okkur enn ekki tekist
að finna. Það er ekki nóg, að við
loksins sjáum að trúin á Guð, skapar-
ann, geti játazt hinni vísindalegu leit
að uppruna heims og manns. Það,
sem skiptir máli er, að hin vísindalega
leit og rannsókn, svo og tœkniaðferðir
taki mið af og styrkist af trúnni á
skaparann, trú, sem hefir merkingu,
tengist með jákvœðum hœtti við lof-
gjörðina til skaparans. Þegar þetta er
tekið alvarlega og við höfum gefið
okkur að þessu, þá munu menn taka
að hlýða á og trúa því, sem sköpunar-
sagan og öll Biblían hefir við okkur
að mœla með varnaðarorðum sínum
um það, hvar takmörk okkar séu.
Þýtt úr ensku A. J.
The Genesis Accounts of Creation.
Hliðsjón var höfð af danskri þýðingm
Skabelsesberettningen í I. Mosebog-
240