Fríkirkjan - 01.03.1899, Blaðsíða 6

Fríkirkjan - 01.03.1899, Blaðsíða 6
38 að drottinn haíi fullkomlega gefið í skyn í orði sínu, að kirkja hans eigi bæði að vera frjáls og byggja sig sjálf upp. Þetta byggi eg meðal annars á frásögunni um byggingu tjald- búðarinnar. í 2. Mós. 35. kap. lesum vér þetta: „Móses talaði til allrar alþýðu ísraeismanna, og sagði; Þetta er það, sem drottinn lieíli* hoftift. er hann sagði: Veljið drottni upplyptingarfórn. Sérhver sá, sem gefa vill af góðurn hug, færi drottni þessa upplyptingarfórn, gull, silfur, eir“ o. s. frv. (4. og 5. v.). Þannig telur Móses upp fyrir fóik inu alit, sem þarf til tjaldbúðarinnar, og þegar því er iokið, segir svo: „Síðan gekk öll alþýða írsaelsmanna út frá Móses, og allir, sem þar til voru lundlagnir og höfðu góðan vilja, komu og færðu upplyptingarfórn til drottins, til að fuligjöra samkundutjaldbúðina" (20. og 21. v.). „Komu svo allir þeir, sem góðfvst hjarta höfðu, bæði menn og konur, og færðu nasa- nisti, eyrnaguii, hringa, gulltölur og alls konar gulibúnað" (22. v.). „Eins gjörðu allir menn og konur, hverra hjörtii hneigðust til að láta eitthvað af hendi rakna tii framkvæmdar þess verks, sem guð hafði boðið Móses að gjöra; ísraelsmenn færðu drottni þetta sjálfviljugir“ (29. v.). ^ í 36. kap. segir svo um tjaidbúðarsmíðið: „Móses kallaði til sín Besalel og Óhóiíab og alia þó hagleiksmenn, sem dro.ttinn hafði gefið hugvit, og hvern þann mann, sem sjálfkrafa vildi ganga að þessu verki og leggja hönd á það; tóku þeir við af Móses allri þeirri upplyptingarfórn, sem ísraelsmenn höfðu lagt til heigidómsgjörðai’innar; og hvern morgun færðu menn þó enn til hans gjafir sjálfviljuglega“ (2. og 3. v.). — Þar eð nú drottinn ákvað að hin forgengilega tjaldbúð skyidi upp byggð af fríviljuglegum gjöfum, hversu miklu fremur mun það þá eigi viiji hans, að hin óforgengilega tjaldbúð, hans útvaldi söfnuður, sé uppbyggður af frjálsum fjárframlögum ? Það virð- ist mér deginum ijósara. Petta hefur að öðru ieyti sína sið- fræðislegu þýðingu, og mun því hafa verið skráð fyrir alla Abrahams niðja eptir trúnni, þeim til lærdóms. Yér skulum sem snöggvast liugsa oss að góðgjörðasemi væri lögboðin! Plvernig mundi það taka sig út? Þá gæti sérhver lúinn ferða- maður „sezt“ upp þar er honum sýndist og heimtað góðgjörðir „samkvæmt iögum". Löghlýðinn maður mundi.

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.