Fríkirkjan - 01.05.1902, Side 3

Fríkirkjan - 01.05.1902, Side 3
67 hef glatað lífi mínu, þessu eina lífi, sem mér er lánað, og ekki hugsað um annað en raka saman peningum. Eg hef trúað á peningana, og nú koma þeir mér að engu haldi. fið segið að eg verði að deyja, en eg vii ekki deyja. Páið mér víkslabók mina. Eg gef hverjum ykkar tíu þúsund krónur, sem getur komið dauðanum á dyr að þessu sinni. Gamail og gætinn læknir, sem var farinn að kynnast skapferli mínu, hristi höfuðið og sneri sér undan, en nokkrir yngri stallbræð- ur hans skipuðust til varnar, sumir með hnífa og sveðjur og aðrir með smyrslakrúsir og meðalaglös, sem þeir vörpuðu að mér í ákafa. Eg hratt þeim þá frá, óð að sænginni og sagði: ,Heimskingi i kvöld verður sál þín heimtuð af þér'. ,Þú skalt íá 100 þúsund krónur, ef þú bíður hálftíma', sagði hann. Eg tók fyrir kverkar hans i stað þess að svara, angistarópið end- urhljómaði í öilum viðhafnar stofum hans. f*ótt margir taki við mútum, þá geri cg ]>að ekki“. — Það var ægi- legt að sjá svip hans er hann mælti þessi síðustu orð. — „Eg hef komið víða í dag“, hélt dauðinn áfram, „og iagt kalda hönd á fátækan og ríkan, háan og lágan, ungan og gamlan, viðhúinn og óviðbúinn. Eg hef komið í hallir og höfðingjasetur, bænda bæi og hreysi fátæklinga. Það var lokað hliðum og hurðum, þegar sást til mín; vinir og vandamenn kounr og börn lágu grátandi á hurðunum og héraðslæknar og skottu- læknar bjuggust til varnar, en eg fór minna ferða engu að síður. Eg fer óhræddur til iæknanna og tek þá með mér, þegar stundin er komin. — í nótt, sem ieið, fór eg til eins vantrú- armannsins, sem kallaði sig fríþenkjara. Hann hafði opt sagt, að enginn guð væri til og ekkert líf til eptir þetta lif, og gjört gys að Kristi og lærisveinum hans. Um daginn gekk eg fram hjá kirkju, þar sem hann og fleiri af iíku tagi voru staddir, aldrei þessu vant. Mér blöskrar ekki margt, en mér blöskraði samt að heyra þá syngja með alvörusvip á andliti, en háðbros í hjarta: ‘Sinn líkam Jesús iét mig næra, hann lét sinn dreyra svala mér, ó hvílík náð, míns herra kaera í hjarta nú eg geymdur er. Mér afdrif síðast gef þú góð, ó, guð minn fyrir Jesú blóð'. — Eg var rétt kominn að því að rjúka í bræði minni inn í kirkjuna og löðrunga þessa hræsn-

x

Fríkirkjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.