Kirkjublað - 15.04.1934, Qupperneq 1

Kirkjublað - 15.04.1934, Qupperneq 1
KIRKJUBLAÐ 2. árg. Sunnudaginn 15 april 1934. 8. tbl. Vald er veikara en gæði. Eftir Nathan Söderblom erkibiskup. Tvö andstæð lögmál sýnir Jesús hlið við hlið, lög- mál elsku og lögmál endurgjalds. Fátt er mönnum, eins og þeir ganga og gerast, auð- skildara en sú regla, að gjalda líku líkt: Ef einhver hefir gert þér greiða, þá átt þú að gera honum greiða á móti. Félagslífið fylgir reglum verzlunar og .viðskipta. Með því, sem eg læt gott af mér leiða, kaupi eg fríðindi, vináttu og gjafir af náunganum. Þetta getur virzt vera heiðarlegt í alla staði. — En Jesús fellst ekki á þessa aðferð. Bjóoi menn gestum í von um boð þeirra í stað- inn, er það vinsemd, sem Jesús metur einskis. Ef einhver vinnur þér óleik óverðskuldað, þá er það fyrsta hugsun þín: Hann skal að mér heilum og lif- andi fá að hitta sjálían sig fyrir! Og þér er nautn að hugsa til þess, er þú fáir tækifæri til að jafna um hann á einhvern hátt. Endurgjaldið er lokkandi. Hefndin svalar. — Ef einhver ræðst á þig, stekkur þú upp á nef þitt og villt tafarlaust greiða honum í sömu mynt. Mönn- um finnst það smán og minnkun að þola högg eða hnjóð, án þess að svara fyrir sig. En nú kennir Jesús þvert á móti, að það sé meiri karlmennska og kjarkraun að stilla sig, en gjalda líku líkt. Hvernig eiga menn að verja sig, ef á þá er ráðizt? Með öðrum vopnum en þeim, sem árásin var gerð með, -— með vopnum kærleikans. Það er, þegar öllu er á botninn hvolft, eina leiðm til þess að vinna á hinu illa. Páll postuli f.ór að ráði Jesú og sagði: ,,Lát ekki hið

x

Kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.