Kennarinn - 01.10.1899, Síða 15

Kennarinn - 01.10.1899, Síða 15
SKfRINGAR. Aðal-hugsunin som gengur í gegn um alla þessa sögu, er hugsunin um forsjón guðs eða stjórn hans á hðgum maunanna. Salan á Jósef til Egyfta- lands, það að hann kemst i hendur Pótífars, staða Pótít'ars við hirð konuugs- ins, breytni konu Pótífars, það að .Tósef var varpað í myrkvastofu, það að æðsti skenkjarinn var settur í sömu myrkvastofuna, draumur skenkjarans, og ráðning Jósefs á drauminum, var alt lilekkir í einni keðju og miðaði alt til upphefðar hans s<>m yflrboðara Egyftalands, sem aftur leiddi til varðveizlu Israelslýðs frá hungursdauða og reynslu lians í skóla áþjánarinnar í Egyfta- landi,—Eins og drottinn vakti yflr Jósef, svo vakir hann yflr öllum mönnum til verudar og varðveizlu, jafnvel hinum lítilinótlegustu og lætur alt verða þeim til góðs, sem guð elska. “Jafnvel öll yð ir höfuðhár eru talin.” Jósef var liinn sami Jósef í myrkvastofunni eins og hann var sem frjáls maður. Þótt honutn sé nú varnað að liafa i'rjálst samneyti við aðra menn, iinnur hann nóg tækifæri til að gera skyldu sína. llið sama göfuglyndi og staðfesta, sem haflð liafði liann til metorða í liúsi húsbónda síns, sýnir sig einnig bak við griudur díflyssunnar.—Það borgar sig jafnan að vera. góðgjarn og alúðlegur, eins í mótlætinu som endrarnær, eins og bráðum kom á daginn fyrir Jósef. l>að var vegna hinnar miklu meðaumkunarsemi hans og nærgætni að hanu tók eftir lirygð félaga sinna og spurði: “Ilvorsvegna eruð þér svo dauflegir á svipinn í dag?” Jósef var vörður skenkjarans, en samt var liann blíður og notalegur í viðmóti við hann, og þegar hann komst að orsök angurs hans, þó draumar sjálfs hans liefðu oröið honum dýrir, þá fyrirlítur hann ekki draumiun, heldur ræður hann með aðstoð guðs. Vegna þessarar nan-- gætui .lósefs var það að dyr myrkvastofunnar voru opuaðar fyrir honum sjáll'mn tveim árum síðar og hann gekk úr díflyssunni í hásætið. Drau nir. skenkjarans var ráðgáta, sem Jósef einn fékk ráðið. Líflð er fult af leynd irdómum, sein aldrei skiljast fyr en í ljósi liins guðlega saun- leika. Alt líf mannsins er óskiljanlegt nema fyrir opinberun guðs—ráðning hans á lífsdraumnum. Oss dreymir um uppliefð og frelsi, og drottinn birtir oss fylling vona vorra í fyrirheitunum mn eilíft lif á liimni. Krossinn Jesú Krists er lykillinn að dyruui alls hins dulda. Draumur skenkjarans rættist. Ilann ber aftur bikarinn að vörum konungs- ins, sem á ný trúir honum fvrir lili sínu, en livar er Jósef, drauinþýðarinn? Hann þjáist enn i varðhaldinu og þráir freisið. Hón hans “mundu tii mín” er skenkjaranum gleymd nú þegar hann aftur er kominu í dýröina í liöll Fara- ós. Skenkjarinn hefur glei/mt! Hversii mörg stynjandi hjörtu ma-tti ei sefa, hve margra líf ekki gleðja ef menn elnungis vildu muna. Vér liöfum allir aftur fuudið náð við liásæti himinsins fyrir hið dýrmæta fórnarblóð. Minnumst vér þá hins ástkæra lausnara vors með hjartanlegu þakklæti, þar sem vér göngum út og inn og njótum frjálsir farsæls lífs í náðarríki guðs hér á jörðunni. Vér skulum ekki gleyma eins og skenkjarinn, heldur muna, muna alla guðs náð og eiukum það, að hann frelsaði oss úr myrkvastofu syndarinnar,

x

Kennarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.