Vekjarinn - 01.01.1903, Page 5

Vekjarinn - 01.01.1903, Page 5
5 „Já,“ svaraði hún með lágri og skjálfandi röddu. „Það hefur nú verið eina athvarfið." Jeg varð forviða. Hjer iá þá guðs barn veikt og hungrað í vesölum kofa og hafði tíu' ára dreng til að vinna fyrir sjer. Og samt hafði hún varð- veitt von og trú. „Lítið þjer á,“ sagði hún og tók blað undan koddanum, „lítið þjer á, hvað hjer stendur.“ Jeg tók blaðið og las það. Það var úr skýrslu um barnaheimili mín, og endaði á orðum, sem jeg sagði einliverju sinni, og opt hafa verið endurtekin: „Jeg hef ekki öll þessi ár neitað einu einasta barni um upptöku á heimili mín, sem hefur beðið um hana.“ „Sjáið þjer til,“ sagði konan, sem grunaði alls ekki, hver jeg var, „jeg hef vonað og beðið að börn- in mín gætu komizt á þessi heimili; þar færi vel um þau, og jeg þyrfti engu að kviða.“ Jeg sat þegjandi og hugsaði um vegi guðs og náð. Loks sagði jeg: „Jeg hef ekki sagt, yðurnafn mitt, en nú er bezt að þjer fáið að heyra það. Jeg hef stofnað þessi heimili, heiti Barnardo. Jeg „á“ marga drengi og stúlkur, og ætla nú að reyna að sjá um börnin yðar, ef þjer viljið. “ Jeg get ekki lýst undrunar og gleðisvip kon- unnar. „Eruð þjer Barnardo læknir? Pjer kom- inn hingað? Sjálfur? Já, guð er dásamlegur guð! Enn hvað þetta er undarlegt! En hann er guð, som heyrir bænir.“ „Já — guu, seoi heyrir b?enir/‘ sagði jeg,

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.