Verði ljós - 01.12.1904, Síða 5
VERÐI LJÓS!
181
sneri liann sér að vinum sínum, er hjá honum stóðu og furðuðu sig á
þvi, hversu allir nú fyrirlétu hann svo skyndilega, og sagði: „Þór eruð
sjálfir vottar mínir, að ég sagði: „Ekki er óg Kristur, heldur: Eg er
sendur á undan honuro. Sá sem á brúðina, hann er brúðgumi, enn
vinur brúðgumans, sem stendur hjá honum og hlýðir á haun, gleðst
innilega við rödd brúðgumans. Þessi gleði mín er fullkomin.
Hann á að vaxa, en ég að minka“.
Það veitti Jóhannesi skírara hina fullkomuu gleði að hlýða á rödd
Jesú. Og þannig staðfesti haun orð engilsins hina helgu nótt: „Sjá óg
boða yður mikla gleði: Yður er í dag frelsari fæddur“.
n.
Sextíu ár eru liðin. Yór erum staddir i Efesus, hinni frægu höfuð-
borg Litlu-Asíu, hér um bil 90 árum eftir fæðingu Krists. Þar situr
gamall, öldungur, en þó með unglingssvip. Hann er ineð bókfellsleugju
fyrir framan sig og er að rita. Ljósið skín framan í hann og myndar
geislabaug um höfuðið á houum, lokkana silfurhvitu, sem liðast niður á
herðar honum. Haun lyptir höíðiuu og lítur upp. Svipurinn er unaðs-
fagur og hreinn. Andinn er yfir honum. Lengi horfir hann fram und-
an sér, einblínir á ljósið án þess að honum verði ofbjart í augum.
Auguaráðið er eins og á örn, sem sagt er að geti horft í sólina viðstöðu-
laust.
Maðurinn er Jóhannes, - lærisveinninn, sem drottinn elskaði;
hann er nú einn allra lærisveinanna eftir á lífi. Langt er liðið siðan er
Páll lét höfuð sitt fyrir öxi böðulsins, — langt er liðið siðan er augu
Péturs lukust altur þar sein hann hékk krossfestur. Nú er hann einn
eftir á lífi.
Og aftur grípur haun ritreyrinn og skrifar. Hvað er hann að skrifa?
Vér lítum yfir öxlina á honuni og lesurn úr penuanum hjá honum: „Það
sem vér höfum heyrt og séð, það boðum vér yður, til þess að þér líka
getið haft samfólag við oss: eu vort samfélag er við föðurinn og son
hans Jesúm Krist. Og þetta skrifum vór yður, til þess að gleði yðar
geti orðið fullkomin".
í samfélaginu við guð, föður vorn, og Jesúra Krist drottin vorn,
er liina fullkomnu gleði að finua. Svo vottar Jóhannes, postuli kærleik-
ans.
III.
Frá Jórdan og frá Efesus hverfum vér til Jerúsalem. Það er skír-
dagskvöld, þar sein Jesús er staddur i loftstofunni til að neyta páska-
máltíðar í siðasta sinni með lærisveinum sinum. Páskalambinu hefir
verið slátrað, liin heilaga kvöldmáltíð er innsett og svikariun Júdas er
genginn burt til þess að fremja ódæðisverk sitt. Jesús situr einn eftir