Verði ljós - 01.12.1904, Page 6
180
VERÐI LJÓS!
umkringdur af hinum ellefu vinum sínum, sem ekki getur til hugar
komið að yfirgefa hann. Af vörum hans hljóma hin dásamlegu skilnað-
arorð, svo auðug að huggun og auðug að fyrirheitum, sem lærisveinninn,
sem drottinn elskaði, hefir i letur fært í guðspjalli sínu.
Og þegar hann segir þeim samlíkinguna djúpu og andrfku um vín-
tróð og greinarnar, er eins og gleðibros reuni yfir hið alvarlega andlit
hans. Hin takmarkalausa og óumræðilega elska hans, sem gjörði hann
og gjörir enn svo ómótstæðilegan, skín úr augum haus, og bregður
heilögum bjarma yfir hina sviphreinu ásjónu hans. Hann litur framan i
lærisveinana með kærleikans augnaráði og segir: ,,Þetta hefi ég talað
til yðar, til þess að gleði mín sé hjá yður, og til þess að gleði yðar
geti orðið fullkomin".
Heimurinn hefir margvíslega gleði á boðstólum i kringum jólin.
Alstaðar heyrir maður umhverfis sig „gleðileg jól!“ Og menn reyna að
eignast þessa gleði, sem heimurinn býður. Sumt er syndsamleg gleði
í ofáti og ofdrykkju, sumt er saklaus gleði, — en ekkert af því er
fu 11 k o m i n gleði.
Hina fullkomnu gleði er hvergi að finna nema hjá Je.-u’x Kristi!
Guð gefi oss að öðlast hana nú á þessari miklu gleðihátíð. Guð
gefi oss hina sælu gleði guðs barna í trúnni á fyrirgefningu syndanna
fyrir Jesúm Krist.
Því að þetta er hin fullkomna gleði.
Með hliðsjón á 72. sálmi Davíðs.
Vorn konung, drottinn, djásni prýð
úr dygða gulli sanna,
að hann sé góður hirðir lýð
og hjálpin aumingjanna.
Lát stjórn hans veita f'relsi, frið
og farsæld hverjum þegni:
hún sannleik verndi’ og sakleysið,
en synd og löstum liegni.
Sem döggin firrir visnun völl
oss verji lög hans grandi;
hans ríki gagni ráð haus öll
sem regnið þurru landi.
Þeir allir blessist á hans tíð,