Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Side 4
28 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Jdví að hinir clrengirnir fóru beina leið á skíð- unum, og komu heim löngu á undan honum, þó að hann hlypi nær því alla leiðina. Pegar hann kom á hæðina fyrir ofan bæinn, og sá heim, furðaði hann sig á því að sjá eng- an úti. Var Gunnar enn ekki korninn? Rarna voru skíðin þeirra drengjanna; en hvar gátu þeir verið? Skyldi þeir hafa farið inn ístofu? «Ó, ef þeir tæki nú dýrin mín og bryti þau,» hugsaði hann. Hann skalf af hræðslu, stökk afstað, og flýtti sér heinr, sem nrest hann nrátti. Eftir nokkur augnablik var hann konrinn heim, og inn í fordyrið, lúinn og lafmóður. Hann hlustaði. Ójá, þarna voru þeir inni. Hann gekk inn. Ó, þeir höfðu tekið dýrin hans niður af hillunni, héldu á þeim, og virtu þau fyrir sér. «Varið þið ykkur að missa þau ekki niður og brjóta þau», sagði Egill ákafur. «Góðu, farið þið varlega!* Hann rétti út höndina til þess að taka hest- inn af Níelsi. «Eg skal ekki eta hann», sagði hann háðs- legur, og hratt honum til hliðar. «Hver lrefir búið til þessi dýr?» Rað var hestur, kýr, kind, hyrndur hafur og maður; en maðurinn var ekki nema hálf- smíðaður. «Rað er vafalaust Gunnar, sem hefir smíð- að þau,» sagði Ólafur í Ási. «Eg hefi gert það,« sagði EgiII. «Nú lýgurðu», sagði Níels. «Rað er trúlegt! Pú kant víst að beita hnífnum svona!» Hann gerði sér upp hlátur. «Nei sko ! þessi hafur er eins og hann væri bráðlifandi," sögðu þeir hver við annan með hinni mestu aðdáun. «Jú, eg hefi búið þau öll til sjálfur, og eg á mörg fleiri heima.» Haltu þér sanian/ sagði Níels. Hvað skyldi Gunnar vilja fá fyrir þennan hest? Eg kaupi hann.» EgiII varð hræddur. «Fáið þið mér hann,» sagðihann, og hrifs- aði hestinn af þeim. Níels ógnaði honum nieð kreptum hnef- anum. «Engan bardaga í kvöld,» sagði einn dreng- janna, og hinir tóku í sama strenginn, svo að Níels hélt sér í skefjum. Hann setti upp þótta- svip, og lét hringla í nokkrum silfurpeningum, seni hann hafði í buxnavasa sínum. En það hafði engin áhrif; þeir létu ekki ógna sér. Eftir áflogin við Egil náði hann aldrei því valdi yfir hinum börnunum, sem hann hafði áður haft. «Nei, það er alveg dæmalaust, svona fag- urt smíði!» sögðu þeir hver við annan. Augu Egils Ijómuðu af gleði. Honum fanst hann vaxa. «Heima byrjaði eg á kúnni og hafrinum,» sagði hann, «en eg gat ekki komið neinu lagi á þau; eg hafði líka svo vondan hníí. Pegar eg kom hingað, sniíðaði föðurbróðir minn tvo hnífa handa mér, stórann og lítinn, og þeir bíta, skal eg segja ykkur.» Hann sýndi þeim hnífana. «Hefir Gunnar ekki hjálpað þér til?» spurðu þeir. «Nei, en honurn þykja dýrin mín falleg. Rað þótti föður mínum ekki. Hann hæðist að þeim, og finnur á þeim missmíði ein°; og einu sinni henti hann þrem eða fjórum í eldinn." «En hvað þessi hafur er vel sniíðaður!» «Gunnari þykir líka mest vænt um hann,» sagði Egill glaður í bragði. Eg var Iengi, lengi með hann, og ætlaði aldrei að geta koniið neinu lagi á hann. Pá tók Gunnar hann eitt kvöld, og gerði í hann ofur litlar skorur á ýnis- um stöðuni.» «Eg varð hræddur um, að hann myndi ó- nýta hann fyrir mér, en það gerði liann nú ekki. «Líttu nú á, sagði liann, «þegar hann fékk mér hann aftur, haltu nú áfram, |iar sem eg liefi merkt, og Jiá held eg að hafurinn þinn verði rétt skapaður.» «Eg gerði það, og þá fór altað Iagast«. Allir störðu á Egil, og hlustuðu á orð hans með eftirtekt, eins og hann væri alt í einu orðinn mælskumaður. Níels einn var í illu skapi. Englnn virtlst

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.