Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Qupperneq 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Qupperneq 24
48 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. í skólanum. Kennarínn: »Ef 8 ykkar fá til samans 48 epli, 32 perur og 64 jarðber, hvað fær hvert ykkarþá, ef jafnt væri skift? Ekkert svar. Kennarinn: »Hana nú, Pétur litli.« Pétur (hikandi): »Við fengjunijöll magapínu.« Aðgæzla. Klæðissalinn: »Láttu ekki alinmálið liggja þarna hjá ofninum, strákur, hitinn teygir alla hluti.« Hygginn kral. Á eimskipabryggjunni í einum af smábæjum Noregs kallaði gamall bóndi upp til skipstjóra á eimskipi, sem varð ferðbúið, og spyr hvað kosti að fara með skipinu fram og aftur. Skipstjóri svaraði því óðara. »En hvað má eg hafa mikið með,« spurði bóndi enn fremur. »Eins mikið og þú getur borið,« svaraði skipstjóri góðlátlega. Rétt á eftir kom karl fram á skipið tneð kerlinguna sína í fanginu. Hann: «Foreldrar mínir vilja endilega að eg giftist ungfrú Pálínu.« Hún: »Það er ekki illavalið. Pálína er bæði falleg og gáfuð.« Hann: »Eg kæri mig hvorki um fegurð né gáfur, einungis vil eg giftast yður.« Endurgoldin öfund. H ú n : Það er til ein kona, sem eg öfunda, og það undarlega er að hún öfundar mig líka. Hann: Hvernig stendur á því? Hún: Við elskuðum báðar sama manninn, og það varð mitt hlutskifti að giftast honum, Það hreif. Jeg bið frúna að reiðast mér ekki, þótt eg sé svo djarfur, að biðja hana að mæla með því, að maðurinn yðar taki mig í skrifstofuplássið, sem hann hefir auglýst, sagði ókunnugur ungur maður. Get ekki, sagði frúin, eg skifti mér aldrei af verzluninni. Ungmennið: Jeg veit eg er fær um að annast starfið. En cg hefi hættulegan keppinaut. Eg veit eg er duglegri, en eg er ekki fríður sýnum, aftur er hún, sem sækir á móti mér------— Hún! greip frúin fram í með geðshræringu. Ungmennið: Já, frú, keppinautur minn er ljóm- andi falleg stúlka, kornung. Jæja, sagði frúin gætilega um leið og hún beit sig ofurlítið í neðri vörina. Reynið þér að finna manninn minn snemma á morgun í skrifstofunni. Það er ekki ómögulegt að þér fáið plássið. Á giftingardeginum. Brúðurin: Mamma heldur að við munum aldrei rífast eins mikið og hún og pabbi gjöra. Brúðguminn: Það held eg sannarlega líka, elskan mín. Brúðurin: Já, því mammasegir að það muni verða langtum léttara að stjórna þér en pabba. Katrín litla: Heyrðu móðurbróðir, eg var í dýragarðinum í gær og veistu hvað, eg sá þar asna sem var nærri eins stór og þú. Hinrik lit'li: Lengi ertu gáfuð Kata, veistu ekki að það er ekki til í veröldinni eins stór asni og móðurbróðir. í greiðasöluhúsinu. Kostgangarinn: Heyrið þér nú borðþjónn góður, í dag er maturinn blátt áfram óætur; gerið svo vel að kalla á gestgjafann. Borðþjónninn: Afsakið. Húsbóndinn erný- farinn burt til þess að fá sér miðdegismat. Hann vissi hvað við átti. Frúin (við betlarann): Þú ert sá ljótasti slæp- ingur, sem eg hefi séð. Betlarinn: Ónei,"frú, en eg lít svo illa út í samanburði við jafn fríða konu og yndislega, sem eg nú er nær staddur. Frúin rétti honum krónu um leið og liann fór. Hjá spákonunni. Ungfrúin: Á eg þá einungis að fá einn mann alla ævina? K e r 1 i n g i n: Hvernig getið þér búist við meiru fyrir eina 50 aura? Eftir tnessu. Á r n i: Var það ekki skammarlegt, hvernig Jón í Holti hraut í kirkjunni í dag. Björn: Víst var það skammarlegt. Hann vakti okkur hina, karluglan. Ofullkominn draumur. »Jón minn!« »— — hvað viltu elskan mín?« »Veistu hvað mig dreymdi yndislega í nótt?« »Nei.« »Mig dreymdi að þú værir búinn að kaupa svo ljómandi fallegan sumarkjól handa konunni þinni.t »Svo, dreymdi þig það, en dreymdi þig þá eigi hvar eg hafði fengið peningana fyrir hann?« »Onei!« »Það var leiðinlegt, reyndu, elskan, að sofna aftur og láta þig dreyma það, því eg veit engin ráð til þessaðfá peninga fyrir suniarkjól handa þér.« Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.