Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Síða 12
36 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. sagt eitt og annað — En nú er hann hættur að konia til þeirra.» «Líklega af því að hann hefir mátttil. Rað er raunalegt að vera slíkur listamaður og vera í tjárþröng.» Ritarinn svaraði :engu þessum orðum, sem komu frá hlýju og viðkvæmu hjarta. Að minsta kosti heyrði Odrich, sem stóð þar skjálfandi og með hjartslætti, ekkert svar. Dyratjöldin opnuðust alt í einu. Agata Moralt stóð frammi fyrir honum. Glaðlegt bros lék um alvarlega, fallega and- litið hennar, «Æ, þarna eruð þér þá sjálfur — gerið þér svo vel — þér hafið víst ætlað inn — var ekki svo?» Ungi málarinn færðist ekki úr stað. Óttinn og úrræðaleysið settu haft á fætur honum. «Eg ætlaði... nei. .. þess þarf ekki lengur . .. ef þér vilduð gera svo vel. .. í svo vondri birtu» .. hann varð orðlaus, því hún horfði á hann forviða, ... «fyrirgefið, eg ætlaðist eklci til þess.. . það var tilviljun að eg heyrði...» Bros lék aftur um andlit Agötu Moralt — bjart gleðibros. «Nú, þer vitið þá, að eg ætla að ræna yð- ur myndinni yðar; þetta eru afleiðingarnar; því hafið þér málað myndina svona meistara- lega ? Hún heillar mann í fyrsta viðliti, og það er ekki hægðarleikur að slíta sig frá henni — og þá verður maður að kaupa hana.» «Náðuga ungfrú," stamaði hann, «eg veit ekki hvernig eg— þér ofhlaðið mig því góða — eg get enga þökk sýnt yður, og á yður þó alt að þakka — meira að segja umgerð mynd- arinnar, — hún er af yðar peningum ...» «Sem þér áttuð,» tók hún fram í, „það gleður mig af hjarta; nú hefi eg þó uppbót.» « Uppbót?» , *Já, Cæsar, Zeppa, sem eg kallaði liann; því að það er hann, sem þér liafið sett þarna á myndina?» Max Odrich gat engu svarað. Hann titr- aði við og skifti iitum. Agata tók ekki eftir því eða eignaði það óframfærni hans. «Rér vitið náttúrlega ekki, að Zeppa er ekki lengur í minni eigu. Hann hvarf einn daginn ertir að eg fór. Mér fellur illa að verða að segja yður það, af því eg veit hvað hundur- inn var elskur að yður. Eg veit yður fellur illa, ef honum líður illa. Eg hefi heldur ekki sparað að snupra stúlkuna, en hún afsakar sig með uppþotinu sem varð við eldsuppkomuna. Bara að hundgreyið hafi ekki orðið fyrir slys- um við hana.» Max Odrich hélt hann mundi sökkva í jörðina. Hefði hún verið einsömul, hefði hann fallið á kné fyrir henni og sagt henni alt eins og var. Honum virtist hún hvort er var eins og friðarengil! fyrirgefningarinnar og gæðanna. En —hér var það ekki hægt— að eins fáeinum samhrygðarorðum megnaði hann að stama upp. «Nú», sagði hún um leið og hún gekk út að salardyrunum, og málarinn varð henni sam- ferða, «Pað liggur betur í mér en hingað til hefir verið. Eg held helzt að eg sé á leið með að komast eftir, hvar gamli Zeppa minn er niður kominn.» Málaranum létti svo, að hann andvarpaði við: «A, haldið þér það? Hvernig geturstað- ið á því?» «Rér getið bráðum fengið að vita það ef þér viljið. En það er ókurteisi af mér að biðja yður urn dálitla aðstoð— eða viljið þér hjálpa mér?“ «Með þúsundfaldri ánægju, ef eg get.» «Eg kom hingað af hundamarkaðinum,» sagði hún, «í dag liefi eg þó áunnið nokkuð einmitt þegar eg átti tveggja kunningjanna að sakna. Eg hitti manninn aftur, sem hafði selt mér Zeppa, þann fyrri að segja. Rað var auð- séð að hann þekti mig ekki. Eg lét ekki á neinu bera, en lét hann hæla hundum sínum. Svo sagði eg að eg væri til með að kaupa bolhund— eg veit varla af hverju, en mér þótti maðurinn grunsamlegur; ef til vill gæti eg á einhvern hátt felt hann á sjálfs hans bragði.» < Rér haldið þá, að hann hafi þá aftur ver- ið orðinn eigandi að hundinum sínum — yðar?» «Já, að hann hafi blátt áfrain stolið hon- um; scgið þér það bara fullu nafni,»

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.