Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Blaðsíða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Blaðsíða 13
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 37 Max Odrich þagnaði. «Maðurinn fór undir eins» hélt Agataáfram, „að bjóða mér hund, sem hann ætti heima. Hann væri nýkominn utan úr sveit og ekki enn bæjarvanur, og því hafi hann ekki komið með hann á markað; heima hjá sér gæti eg fengið að sjá hann. Eg lét hann lýsa hundin- um fyrir mér, og lýsingin bar alveg heim við hann Zeppa minn.» «Og nú ætlið þér— —» «Að minsta kosti að komast fyrir, hvort þessi grunur minn á við rök að styðjast.» «Og þér eruð ekki hrædd um ...» «Það er einmitt þess vegna, sem eg vildi biðja yður að hjálpa mér. Maðurinn er ekki góðmannlegur útlits, og ef hann sér, að eitt- hvað ætlar að komast upp um hann, er ekki að vita til hvers hann þrífur. Rjónninn minn er því miður lasinn, og alókunnum manni get eg ilia trúað fyrir þessu fyrir mína hönd, því að eg ein þekki Zeppa. Eg vil heldur ekki láta það dragast, svo hundurinn verði ekki seldur öðrum. Kaupmaðurinn kvaðst verða heima eftir tvo klukkutíma. Rér verðið að vera mér til hlífðar— hjálp til vara ef í hart kynni að fara. Rað er ekki langt þangað — eitt af fyrstu húsunum í útborginni eftir tölunni að dæma. Hver veit hvort við finnum ekki líka hann seinni Zeppa minn, fyrirmyndina yðar á litmyndinni!» Pað var í raun og veru eitt af næstu hús- unum í útborginni, gamall hjallur, skuggaleg- ur og draugalegur, sem þau komu að eftir nokkura stund. Unga konan aðgætti það vandlega, og sagði svo: «Héráþað að vera, jafnt jörðu til vinstri handar; verið þér nú eftir hérna, ef þér viljið gera svo vel, því að ekki megum við sjást saman. — Ó þér megið ekki halda, að eg fyr- irverði mig fyrir að láta sjá mig með yður — neitið þér því ekki, yður datt það í hug, egsá það á hreyfingum yðar. En þá þekkið þér mig illa. Eg met einskis palladóma heimsins. Rað eru hagsmunirnir, sem sá getur notað sér, sem stendur einn í veröldinni eins ög eg. f>á er maður sannarlega frjáls, og verður það þang- að til rnaður sleppir því frjálsræði af eigin vild. Pér skuluð vita, að í dag hefi eg gert það af yfirdrepskap. Hundasalinn veit ekki betur en að eg sé gift; eg hefi stundum gainan af að bregða fyrir mig uppgerðinni, ef það er nokk- ur skynsamleg átylla til þess. Og svo var hér, Eg vildi ekki láta þennan tvíræða mann koma heim til mín; hann bauð mér að sönnu að koma með hundinn; enn þá hefði hann ef til vill þekt mig aftur eða farið að gruna eitíhvað og ekki komið. Ress vegna sagði eg honurn, að eg ætlaði að koma flatt upp á manninn minn, og gefa honum hundinn í afmælisgjöf. Rannig veit hann hvorki hvað eg heiti, né neitt um mig. Eg gift — er það ekki skrítið? eða — er eg nú sérlega frúarleg ?» «Eg veit ekki,» stamaði Max Odrich vand- ræðalegur og roðnaði upp í hársrætur, '«hin náðuga ungfrú lítur út — eins og þér eigið að líta út. En nú skii eg— menn gætu haldið, að eg væri maðurinn yðar— eg, giftur eigin- maður—- Ja, væri það ekki kátlegt?» «Eg veit ekki,» át Agata brosandi upp eft- ir honum; en svo þegar förunautur hennar varð enn vandræðalegri, hætti hún, sneri sér að húsinu og sagði: «F*ér bíðið mín þá hérna í skjóli við vegginn þarna. Rér komið ef eg kalla, eða eitthvað það gengur á, að eg þurfi hjálpar með.» Aður enn málarinn gat svarað var hún horfin léttum og stæltum skrefum inn í skugga- lega húsið. Hjartað lamdist um í Max Odrich. I þenna svipinn gleymdi hann sínum eigin vandamálum gagnvart þeirri konu, er hafði gert honum svo mikið gott og bjargað honum. Hann beindi nú augum og eyrum aðeins að því, er gerast kynni næstu augnablikin. Hann nærri iðrað- ist eftir að hafa hleypt henni einni inn. Var það ekki á hans ábyrgð, ef veikburða kven- maður lenti í helberri hættu. Rað kom í hann einhver óskiljanleg hræðsla. Ef eitthvað kæmi nú fyrA- hana! Honum fanst sú tilhugsun fara éins ög hnífur í gegnum hjarta sitt. Var

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.