Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Page 20

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Page 20
44 NÝAR KVÖLDVÖKUR. sá því, að eg varð að bíða og vita hvort tím- inn leiddi eigi í ljós, af hverju símskeyti Coll- ets var í fylsta ósamræmi við það, sem herra Tregenna skýrði mér frá fyr og nú. En for- vitni mín var vakin, og eg einsetti mér að heimsækja óðalseigandann sem fyrst, Herra Tregenna tók sjálfur á móti mér á járnbrautarstöðinni, var hann mjög glaður í bragði og lék við hvern sinn fingur, þung- lyndið og ómannblendnin, sem mér í fyrstu hafði virst hvíla yfir manni þessum, var með öllu horfið. «Hjartanlega velkominn,» sagði hann og rétti mér höndina. «Hvernig líður drengnum yðar?» spurði eg. «Ágætlega, gullfallegur snáði, sem aldrei hef- ir orðið misdægurt síðan hann fæddist.» «En frúin ?» «Heilbrigð eins og hestur, hvað ætti svo sem að geta gengið að henni. Annars sýnir hún sig sjálf innan stundar. Parna sjáið þér húsið, er þetta eigi land sem er ánægjuefni að geta eftirlátið syni sínum. Hvað, sögðuð þér nokknð herra Gilkrist?» «Nei,» svaraði eg, «en eg var að hugsa um hvað landið yðar er ljómandi fallegt.» «Já, það hefir verið í ættinni marga manns- aldra.» Við skunduðum síðan heim að hinu reis- uglega íbúðarhúsi, og stóð frúin úti fyrir dyr- unum, og barnfóstran stóð á bak við hana í hvítum kjól með drenginn í fanginu. «Hér komum við Kata,» hrópaði maðurinn, «komdu með drenginn. Petta er herra Gil- krist. Láttu mig taka við drengnum, hvað segið þér svo um snáðann?» Meðan Tregenna lét dæluna ganga roðnaði frúin ofurlítið, annars var andlitsliturinn bleik- ur og fór því hinn daufi roði henni vel. Augu hennar voru glansandi og horfði hún með miklum innilegleika á manninn, enn gaf mér eða barninu engan gaum. «Er þetta ekki efnilegur drengur eigi nema 6 mánaða?» sagði faðirinn. Jú, mjög laglegt barn» svaraði eg. »Heyrðu góði minn« sagði frúin, «það er óvíst að hr. Gilkrist sé jafn barnelskur og við, það er svo eðlilegt. Á eg eigi að sýna yður garðinn herra minn, eða óskið þér heldur að koma inn undir eins til tedrykkju?» »Eg vil koma með yður að skoða garðinn,» svaraði eg, «en það er eigi rétt hjá yður að eg hafi eigi miklar mætur á synt yðar, því eg var hjá manni yðar þegar hann fyrst fékk skeyt- ið um drenginn, og eg vissi því vel, hve ó- umræðilega glaður hann var við það, og hefi eg oft hugsað um það síðan.» »Já, það var fagnaðarríkt kvöld,«’sagði óð- alseigandinn og rendi ástríkum augum til kon- unnar. Svipur hennar breyttist allur við þessi orð, dökku augun hennar glönsuðu meir en áður og hún brosti yndislega, en hins vegar lýsti andlit hennar miklum viljakrafti, og því, að kona þessi myndi ekki láta alt fyrir brjósti brenna ef í það færi og á þyrfti að halda; yfirleitt geðjaðist mér mjög vel að henni og fór eg nú að veita barninu nákvæmari eftirtekt. Rað var þreklegur drengur nokkuð stórskorinn og mér var ekki hægt að sjá, að hann væri neitt líkur hvor- ugu foreldrinu. Hann hafði hvorki fegurð móð- urinnar né hinn göfugmannlega svip föðursins. Hann var eitt af þessum vanalegu börn- um, sem menn víða sjá, en hraustlegur var hann og táplegur. «Yður finst hann ekki líkur okkur« sagði frúin, og mmi hafa rent grun í hvað eg var að hugsa um. «Nei, eg sé ekki að hann líkist ykkur,« svar- aði eg. »Blessaður unginn«, sagði óðalseigandinn, „liann er ekki nema sex mánaða gamall, það er enn ekki hægt að gizka á hvernig hann muni verða. Eg hefi nú oft hugsað um að hann muni likjast þér« og liann kinkaði kolli framan í konu sína, »til munnsins t. d., sjáið þér ekki að hann hefir óvenjulega fallegan munn.» »Nei, hann líkist mér ekki og þér ekki heldur Jón«, svaraði hún. >Jæja þá«, sagði óðalseigandinnóþolinmóð- ur, háiiii er allra fallegasti drengur og alveg eins

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.