Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 3
NYJAR KVÖLDVÖKUR. 75 vilji — e/z leyf oss aðeins að deyja i dagsbirt- unni. Osvald afhenti stýrið tveim hásetum, og tók svo upp hníf sinn og risti böndin af öx- unum, sem voru bundnar í máluðum seglpok- um við afturmastrið. Eina tók hann sjálfur, en fékk bátsmanninum og öðrum stýrimanni hin- ar. Það var nærfelt óhugsandi að tala svo hátt að heyrðist fyrir öskrinu í ofvið'rinu, en það logaði enn á lampanum í kompásklefanum, og við þá glætu gat skipstjóri séð greinilega bendingar stýrimanns og sýnt samþykki sitt. f*að var bráðnauðsynlegt að beita skipinu upp ' vindinn, en stýrið hafði ekkert vald yfir því. bman skamms var búið að kubba dragreipin, er héldu uppi rejga afturmastursins; rauk þá aft- llrmastrið fyrir borð, án þess nokkur verulega tæki eftir því annarsstaðar á þilfarinu: jafnvel þeir sem næstir því stóðu hefðu líidega lítið orðið þess varir, ef þeir hefðu ekki fengið ó- þægilegt högg af því, sem gættu sín ekki, en stóðu of nærri, þegar segltaugarnar og reiðinn í kringum mastrið féll niður. Osvald komst svo með félaga sína að komp- ásklefanum, og athugaði kompásinn unt stund. Skipið breytti ekki legu sinni, en virtist sökkva enn dýpra ofan í vatnið. Osvald gerði aftur merki; skipstjórinn gaf aftur samþykki sitt. Og svo stökk þessi hugrakki sjómaður fram, og hélt sér í borðstokkinn og staghælana, og íé- lagar hans á eftir, þangað til þeir voru komn- ir allir að reiðastéttinni; þar dundu á þeim brotsjóarnir fullu afli; hinir digru, hörðu kaðl- ar Iétu lítt undan öxunum, því það varð að höggva mest í kafi í vatni, og má geta nærri að það var bæði erfitt verk og hættulegt. Báts- manninum fleygði út yfir borðstokkinn á hlé- borða, en þar flæktist hann í reiðanum og varð það honum til bjargar frá dauða. Hann klifraðist aftur upp til félaga sinna, sem ekkert hefði í skorist, og fór að hjálpa þeim til. Osvald hjó síðasta höggið; dragreipin. flugu hvínandi í gegnum skeglurnar.; og hámastrið hvarf í haf- löðrið. Osvald og félagar hans hörfuðu aft- 11 r frá þessum hættustað, og til skipstjóra, sem hélt 'til við ’stýrishjólið með sumt af áhöfninni. Skipið snerist nú hægt við, og réttist á kjöl. Nokkrum mínútum síðar var það komið á fleygiferð fyrir storminum, en ruggaði óg- urlega, og rakst við og við ámastrabrotin, sem hengu föst í hléborðareiðanum og drögnuðu á eftir því. Pótt ofviðrið héldist við sama, var þóógang- urinn og lætin minni, af því að skipið rak fyrir vindi og hafði mist eftri möstrin, Næst var nú fyrir hendi að losa skipið við mastra- dræsuna, en þó allir hjálpuðust að, var lítið að því gert fyrri en birti af degi, enda var það fullhættulegt verk í björtu, því skipið vah svo að borðstokkarnir voru neðansjávar á víxl. Reir sem til þess voru settir, höfðu bönd á sér til þess að skolast ekki fyrir borð ; en rétt um leið og þeir höfðu lokið því, fengu þeir stór- sjó yfir sig, skipið bylti sér, og í þeim svifum snaraðist fokkumastrið út yfir akkeris- bitann á stjórborða, Rannig misti «Sérkessa- mærin« möstur sín í ofviðrinu. IV. KAPITUL. Lekinn. Brotin af fokkumastrinu voru höggvin laus frá skipinu; stormurinn var við sama, en sól skein heitt ogveður var bjart. «Sérskessameynni» var aftur beitt upp í vindinn. Nú héldu menn að öll hætta væri um garð gengin, hásetarnir hlógu ogglettust hver við annan á meðan þeir voru í óða önn að búa til bjargmastur og setja það upp, til þess að þeir kænnist þangað, er ferðinni var heitið. «Eg hefði nú ekki látið þessi ólæti svo mik- ið á mig fá,« sagði bátsmaðurinn, «ef það væri ekki þetta með stórmastrið —það var svo ein- stakur afbragðs viður í því; önnur eins spýta er ekki fáanleg með endilangri Mississippi.® «Og hvaða bull maður,» svaraði Osvald, «það hefir aldrei verið dreginn svo góðnr tiskur úr sjó, að annar eins sé ekki til eftir, og það eru til eins góð tré eins og þau, er bezt hafa 10’

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.