Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Blaðsíða 5
NYJAR KVÖLDVÖKUR 77 ans sé sterk og þolin; þá treysta þeir á mátt sinn og reiða sig á þrek sitt og þol. En ef skipið fær leka, þá verða þeir lamaðiraf hræðslu, og ef hann fer vaxandi, fellur þeim allur ketill í eld. Ef þeir verða þess varir að þeir berjast til einskis, þá eru þeir litlu betri en börn. Osvald stökk til dælunnar þegar hann heyrði orð timburmannsins. < Reyndu aftur, Abel —það getur ekki verið;höggðu línuna frá —réttið okk- ur þarna þurran spotta.x Svo var aftur mælt ídælunni; Osvald gerði það nú sjálfur — og niðurstaðan var sú sama «Við verðum að losa um dælurnar, piltar,« sagði stýrimaðurinn, og reyndi að láta ekki bera á að hann væri hræddur; «helmingurinn af þessu vatni hefir hlotið að renna inn á með- an skútan lá alveg á hliðinni.» Hásetarnir gripu fegins hendi þessa snjall- ræðistilgátu; þeirflýttu sér að hlýða boði lians á nieðan Osvald fór ofan að segjá skipstjóranum til; en skipstjórinn var orðinn örmagna af vök- um og áreynslu, og var nú skriðinn í ból sitt til þess að sofa stundarkorn, þegar öll hætta virt- ist af staðin. «Haldið þér, Bareth, að við séum búnir að fá leka?» spurði skipstjórinn alvarlega; «alt þetta vatn hefði ekki getað komist öðruvísi inn.» Nei, alls eigi» svaraði stýrimaðurinn, en hún hefir orðið fyrir svo miklu volki, að það getur verið hún hafi gliðnað í samskeytum. Eg vona það sé ekki verra.» «Hvað haldið þér það annars gæti verið?» «Eg er hræddur um að brotin af möstrun- um hafi skemt hana; þér munið hvað oft við rákumst á þau, áður en við gátum losað okk- ur við þau til fulls; sérstaklega einu sinni man eg glögt eftir því, að stórmastrið virtist rekast rétt undir botninn á skipinu, og það rakst á- kaflega liart á það.» «Nú, það er guðs vilji; við skulum fara UPP> °g það sem allra fyrst.» Regar þeir komu upp á þilfarið, gekk timb- urmaðurinn til skipstjóra og sagði stiililega við hann: „Sjö fet og þrír þumlungar, herra.» Dælurrar voru á fullri ferð; skipshöfnin hafði skiftst í hópa eftir fyrirsögn bátsmannsins, og tóku hver við af öðrum á tveggja mínútna fresti, berir ofan að miíti, að ausa. Svona unnu þeir án afláts í hálfa klukkustund. Retta var æsingarstund; hér var úr að skera, hvort vatnið hefði komið inn ofanvert á skip- inu, eða hefði fengið vatn í sig í seinni storm- inum, því þá voru góðar vonir um, að við það mætti ráða með dælunum. Ingram skipstjóri og stýrimaðurinn stóðu þegjandi nærri vind- unrii, skipstjórinn með úrið í hendinni, en há- hásetarnir hömuðust eftir megni. Klukkan var tíu nu'nútur yfir sjö, þegar hálfa stundiu var a enda; dælan var mæld —línan var mæld ná- kvæmlega — sjö fet og sex þumlungar. Vatnið hafði hækkað í skipinu, þó aðdælurnar væru notaðar af öllu megni. Regjandi örvænting lá í augum allra á skipinu; svo risu upp blót og formælingar. Ingram skipstjóri stóð þegjandi og beit ávörina. «I’að er úti um okkur,» sagði einn af skips- höfninni. «Ekki enn þá, piltar; við höfum enn þá úrræði til að bjargast,» sagði Osvald, eg er á því, að skipshliðarnar hafi látið undan í þess- um horngrýtis látum og ógangi í nótt er v?., og að vatnið fari mest inn í hana ofan til á hliðunum. Ef svo er, þurfum við ekki annað en beita henni aftúr upp í vindinn og taka svc duglega skorpu aftur við dælurnar. Ef hún liggur ekki eins og nú, flöt fyrir vindinum, verður hún þétt aftur.» «Eg er ekki frá því, að herra Bareth hafi rétt fyrir sér», tók timburmaðurinn fram í, «að minsta kosti er eg fyllilega á að svo sé.» Og eg líka,» bætti Ingram skipstjóri við; «komið, piltar, og verið nú röskir; ekki má uppgefast fyr en í seinustu lög. Við skulum reyna einu sinni enn.» Og til þess að hvetja hásetana vatt skipstjórinn sér úr frakkanum og dældi með fyrstu kviðuna, en Osvald gekk til stýrisins og lagði skípinu upp í vindinn. Pegar skipið snerist upp í vindinn, sást bezt, hve mikið vatn var komið f það, á því,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.