Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Blaðsíða 23
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 95 «Liggja fyrir landi «Langskip búin. «Vegr er varðlauss, «en vættki bannar. «Verðr-a véiráðr «í viðrskiftum «harðlyndur Hlér, «þat er höfðingsbragr. «Fríð er föðrleyfð, «frægr er staðr, «hafa heilög vé «heillum ráðit. «HIíðir-a hundrögum «Haralds þrælum «helgi at hæða «vors heimastaðar. «Enn munu áshelgar «ok ætthelgar «sætis-súlur «sifja ok áa «ríki ráða «ok rétt helga, «ættum órum «óðal festa. «Heyri ér hollvinir «ok horskir frændr, «megir mætastir, «ok man et sama: «Vili ér á varðlausum „vegum úti «flúnum fylgja «fylkisstjóra? Sýndist svipliga salr kvikr, heyrðust háraddir hvaðanæfa: «Fylgjum vér frægstum «fylkisstjóra «ey sem áðr. «Rat er öllum heiðr.» A. P. Presturinn. Eftir Ivar Ring. I. KAPITULI. Aðólf Iitli var hinn efnilegasti í barnæsku, °g á fullorðins-árunum gat hann nauniast upp- fylt a't það, sem um hanu hafði verið spáð. Uann var þó ekki í framgöngu sinni ímynd lúns sanna dygðamanns, sem tekur öllu, sent höndum ber, með hógværð og skyn- Hann var ljónfjörugur ærslabelgur, og anidi cft ýmiskonar heimskupör og barna- brek. Hann var jafnan að öllum leikjum me jafningjum sínurn, og eins þótt þeir væri ekl nieð öllu hættulausir, og stundum barði han a *eii<bræðrum sínum, er því var að skifta, o et ekki alt fyrir brjósti brenna. En aldrei lagð ist liann á lítilmagnann. Þótt hann væri stund um nokkuð óiyrirleitinn, kom hvarvetna frar mannlund hans og drengskapur. Hann var eftirlætisbarn foreldra sinna, o avalt var hann efstur sambekkinga sinna í barnt skólanum. Foreldrar hans voru bæði á unga aldri, e þau giftust. Rau áttu erfitt uppdráttar í fyrsti en þau settu sér hátt markmið, og unnu að því með óblandinni lífsgleði, og það gerði þeim erfiðið Ijúft og léttbært. Börnin reyndu engan skort, og þau hlífðu þeim við hverskonar sorgum og áhyggjum. Börnin höfðu enga hugmynd um erfiðleika þá, sem voru því samfara fyrir foreldra þeirra að afla þeim kröftugrar og heilnæmrar fæðu, sem styrkt gæti líkami þeirra, og láta þau ganga á góða barnaskóla, til þess þau yrði færari í lífsbaráttunni, er þeirra misti við. Og auk þess að láta þau að öllu leyti líta vel út, svo að þau kæmust hjá lmútukasti leiksystkina sinna, og þeim áhyggjuru, sem af því leiða. Faðir þeirra var skrifstofufulltrúi, en laun hans voru svo lág, að hann safnaði skuldum. En þær skuldir ætlaði hann að borga, þegar hann yrði skrifstofustjóri. En liann dó áður því marki yrði náð. Rá var Aðólf 14 ára að aldri. Við fráfall manns síns misti konan allan kjark. Hún hafði fylgt manni sínum í barátt- unni, örugg og ókvíðin, en það var styrkleiki hans, sem gaf henni hugrekki. Sorgin og neyð-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.