Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 89 Vonbrigði. Eftir H. Tambs Lyche. Viljirðu komast hjá vonbrigðum, verður þú að búast við þeim. Pú mátt nl. reiða þið á, að þau koma. Og hafir þú ekki átt von á þeim, sértu alls ekki við þeim búinn, þegar þau ganga í garð þinn, er mjög hætt við, að þau komi þér á kaldan klaka. Hugur þess manns, sem elur margar voldugar vonir, en á sér enga von vonbrigðanna og veit ekki, að þau fylgja von- uuuin eins og skugginn líkamanum, hann stend- ur gagnvart þeim eins og gler undir hamars- höggum — — hann brestur, þegar höggin dynja á. En sá, sem veit og skilur, að von- brigðin hljóta að komaogervið þeimbúinn — hugur hans er magnaður móti þeim. Höggið hittir. Rað fær á hann. Hmn bognar að vísu en brestur alls ekki. Hann nær sér fljótlega aftur. Vonbrigðin eru óaðskiljanleg eðli lífsins. Þar hefir svartsýnin öruggastan bakhjall. En svartsýnir menn gleyma því meðal annars, að vonbrigðin eru vanalega ekkert annað en eins- konar afborgun, sem veruieikinn tekur af vænd- um okkar og vonum. Imyndun vor og óskir gefa ávísanir á veruleikann. Hann borgar þær ætíð út en aldrei nema að nokkru leyti. Hann tekur hundraðsgjöld af öllum þessum ávísun- um. Rað eru vonbrigðin. Rað getur líka vel komið fyrir stundum, að við biðjum banka Iífsins um meira en borg- að hefir verið inn fyrir okkur — — meira en nemur lánstrausti okkar eða innieign — meira en gáfur vorar geta og megin vort má. Reg- ar svo stendur á, eru vonbrigðin að eins rétt- mæt neitun lífsbankans á því að borga út ó- sanngjarnar ávfsanir, sem við höfum gefið í hann. Ef við gætum aðeins lækkað kröfurnar lítið eitt og varnað eigingirninni að skrifa alt- of háar ávísanir, þá myndi veruleikinn einnig komast hjá því að valda okkur vonbrigðum. En hér er ekki hægt um vik. Við verðum að vænta mikils til að fá litið. Við verðum að miða yfir markið til að hitta það. Rað liggur einnig í eðli lífsins og hlutanna. En hversvegna þurfum við að miða yfir markið til að hitta það? Ef um vanalegskot- vopn er að ræða, eru orsakirnar mótstaða lofts- ins og aðdráttarafl jarðarinnar. Hvarvetna þar sem hreyfing fer fram í efni, þarer núningsmót- staða fyrir, af því að efnið veitir hreyfingunni mótstöðu. Nokkur hluti hreyfiaflsins hlýtur því að eyðast til þess að yfirvinna þessa mótstöðu, svo skeytið kemst skemra en ella mundi. Og eins og stefnubreyting og ferð pílunn- ar eða örfarinnar — efnislega skeytisins — er afleiðing af fyrirstöðu efnisins, sem skeytið hreyfist í, þannig eru vonbrigðin eðlileg afleið- ing af núningsfyrirstöðu lífsins — veruleikans. Pað verður ekki hjá þeim komist, af því lífið er efninu háð. »Vonin lífs er verndarengill«. Húneraðal- hreyfiafl vort. Standi hún ekki bak við viljann, þá er hann aðgerðalaus. Eða hver vill starfa að því, sem hann hefir alls enga von um að láuist? En sé nú vonin aðal-hreyfiafl vort þá mundi það vera hún, sem flytur oss mest og bezt á- leiðis að marki voru. En af því Iífið er efn- inu háð, þá hlýtur fyrirstaða þess móti hreyfingu vorri að markinu að eyða nokkru af hreyfiaflinu, sem ber oss þangað. Með öðrum orðum: eitthvað af vonum okkar og vændum hlýtur að bregðast — samkvænit órjúfandi náttúrulögmáli. Rað er óviðráðanleg afleiðing þess, að lífið er efni háð en ekki andlegt ein- göngu. Meðan við lifum í löndum drauma vorra og vona, þá erum við eingöngu í andans heimi Rar er engin núningsfyrirstaða, af því að efn- ið vantar. Ressvegna getur hugsana-, óska- og ímyndana-afl vort notið sín með öllu. En óð- 9

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.