Nýjar kvöldvökur - 01.04.1913, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1913, Blaðsíða 16
88 NYJAR KV0LDV0KUR. Erfaskrá Wilsonar. — Amerísk réttarfarsskrýtla. — Eftir Philipp Bergers. »Þvílíkt ágætisland, þessi Ameríka!« segir franskmaðiirinn Júle Verne einhverstaðar í fínu háði. »Hreint óbreyttir alþýðumenn, mála- færslumenn og embættismenn þurfa ekki annað en að ganga um gólf heima hjá sér, svo verða þeir alt í einu flokksforingjar, liðsforingjar, höfuðsmenn og marskálkar,« Maðurinn hafði undarlega rétt að mæla. Það þarf ekki mikið fyrir því að hafa stundum að verða háttstand- andi í hernum: ekki annað en kunningskap við yfirmennina, eða þá hafa dálítil völd í stjórn- málum, stundum jafnvel nóg að halda flokks- foringjunum væna átveizlu, þá er maður áður en varir orðinn herforingi í því liði, hvort sem maður hefir nokkurntíma séð fallbyssu eða hleypt af fuglabyssu á æfi sinni. Um það spyr enginn. Einn af þessum hetjum er »marskálkur Cargill«, málafærslumaðurinn. Prúðmenni það sat um morgun einn kl. 9 á skrifstofu sinni á tólfta lofti í hús-hrófatildri nokkru í Chicago og blístraði léttúðarlag. Stofugögn hans voru: stóll, borð og tveir hrákadallar. Marskálkurinn sat á stólnum, lagði fæturna að ameríkanskri venju upp á borðið og ruggaði sér svo í stól- num, sem stóð einungis á afturfótunum. Alt í einu var barið að dyrum og inn kom maður; hann staðnæmdist brosandi skamt frá marskálk- inum og leit í kring um sig. »Sælir, marskálk- ur,« sagði hann og færði höndina upp að hattinum að hermanna sið. Ekki tók marskálk- uritin kveðjunni, en fór nú ofan í vasa sinn, tók upp hníf og klauf flaska út úr borðrönd- inni utn leið og hann spýtti mórauðu. »Þegar nettmenni koma inn í skrifstofu ntína,« sagði hann æfur, »þá eru þeir vauir að taka ofan.« • Einmitt það,« sagði komumaður þurlega. ♦ Þegar eg kem inn í skrifstofu til prúðntenna, þá eru þeir vanir að taka fæturna ofan af borð- inu.« »Það er nú svo,« segir marskálkur, »en eg er húsbóndi heima hjá niér.« »Nú skakkar hjá yður,« segir komumaður hvatlega, án þess að taka ofan. »Ef þér verðið ekki búnir að borga mér húsaleiguna fyrir hádegi þessa dags, þá hafið þér hvorki umráð yfir skrifstofunni né þessum ágætis húsbúnaði yðar.« »Þ?ð kom mér ekki óvænt.« »Hvernig ætlið þér þá að hafa það?« »Þér sjáið að eg er að snúa borð- inu upp í eldspýtur. Þegar það er búið, þá taka stólarnir við.« »Mikið rétt! Eignin í því er þó ekki ýkja mikil, en til allrar hamingju er pjátur í hrákadöllunum, svo þér vinnið síður á þeim-----« »Segið mér eitt,« tók marskálkurinn fram í, »hvenær er fresturinn útrunninn?» »Klukkan standandi 12 í dag,« svaraði að- komumaður. Samstundis rauk marskálkurinn fram að dyr- um, opnaði hurðina svo auðskilin var mein- ingin. »Ef þér ekki farið á augnabliki, þá rek eg yður út með valdi,« öskraði hann, tÞegar klukkan er 12 eigið þér með skrifstofuna og gerið með hana hvað sem þér viljið, en þang- að til varðar yður ekki hið minsta um mig né mitt. Það getur margt breyst á tveim tímum.« Aðkomumaður sá það ráð bezt að fara, en á þröskuldinum stóð hann við og sagði spott- audi: »Hvað skyldi vera langt síðan, marskálk- ur góður, að nokkur maður hefur beðið yður um að flytja mál fyrir sig? Sjálfsagt ár, ef ekki meir. Hvernig skyldi yður ganga að útvega á tveim klukkutímum þá 300 dollara, sem þér skuldið i húsaleigu?« Lengra komst hann ekki; hurðinni var skelt aftur, og skrölt það, sem hann heyrði innan frá, gjörði honum Ijóst að nú hafði marskálkurinn ráðist á hiákadallana og væri að mölva þá með fótunum í bræði sinni. Honum skjátlaðist held- ur ekki. Marskálkurinn blótaði og ragnaði, ham- aðist við að mölva hrákadallana og tálga og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.