Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 3

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 3
Guðmundur Daníelsson, rithöfundur. Guðmundur Daníelsson er fæddur 4. október 1910 í Guttormshaga í Holtum í Rangárvallasýslu. Faðir hans, Daníel Dan- íelsson frá Kaldárholti var í beinan karl- legg kominn af Torfa sýslumanni í Klofa, og sýnist Guðmundur hafa erft gáfur, þrek og þrótt þessa nafnfræga forföður síns í ríkum mæli. Móðir Guðmundar, kona Daníels Daníelssonar, var frá Mið- krika í Hvolhreppi. Var hún 4. ættliður frá presta-Högna. Þar til Guðmundur var 17 ára var hann heima hjá foreldrum sínum. Átján ára gamall fór hann til Vestmannaeyja og stundaði sjósókn á mótorbát eina vertíð, og veturinn þar á eftir í Grindavík. Tví- tugur að aldri fór hann í skólann á Laug'- arvatni og stundaði þar nám í tvo vetur, en var á sumrin í vegavinnu. Að loknu námi í Laugarvatnsskóla fór hann í Kenn- araskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan eftir tveggja vetra nám. Næstu þrjú árin var hann farkennari norður í Húnavatnssýslu. Sumarið 1936 fór hann til útlanda og ferðaðist allvíða. Haustið 1938 gerðist hann skólastjóri barnaskólans á Suðureyri í Súgandafirði og hefir verið það síðan. Árið 1933 kom út ljóðabók eftir Guð- mund, er hann nefndi Eg heilsa þér. Vakti sú bók talsverða athygli. Tveim árum seinna (1935) kom út fyrsta skáldsaga bans, Bræöurnir í Grashaga, og árið þar á eftir skáldsagan Ilmur daganna, og árið 1938 þriðja skáldsagan, Gegnum lystigarð- lnn. Á þessum árum birtust á prenti, í blöðum og tímaritum, margar smásögur og kvæði eftir hann. Allir, sem skrifuðu um hinar fjórar fyrstu bækur Guðmundar, viðurkenndu að þær sýndu mikla skáld- N- Kv. XXXIII. ár, 9.—12. h. hæfileika, en höfðu samt sitthvað út á þær að setja. Nú í haust kom út fimmta bókin eftir Guðmund, stór skáldsaga i Gnðmuiulnr Daníelsson. tveim bindum, er hann nefndi Á hökkum Bolafljóts. Var um hana getið í seinasta hefti N.-Kv., en síðan hafa birzt um hana ritdómar í flestum blöðum og tímaritum landsins. Hafa fáar bækur, er út hafa komið hér á landi, hlotið betri dóma, og eru ritdómararnir sammála um, að þessi bók Guðmundar beri langt af öllum fyrri bókum hans, og að honum megi nú þegar skipa á fremsta bekk íslenzkra skálda. Birtast hér á eftir sýnishorn úr ritdóm- unum: . .. . „og það skal þá þegar sagt um þessa bók, að það er engin haugganga eða myrkraverk að brjótast í gegnum hana, því að hún er skemmtileg frá upphafi til enda. Skáldauga höfundarins er skært og víðvakandi, stíllinn flugléttur og kjarn- 19

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.