Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 12
154 NÝJAR KVÖLDVÖKUR strax handleggnum í handarkrika hans. Það varð víst svo að vera. Hann varð að láta það. eftir henni núna. Það væri að vísu dálítið óþægilegt, ef kunningjar sæju þau svona arm í arm, því að þau voru ekki ennþá opinberlega trúlofuð. Hann var svo viðkvæmur fyrir öllu því, sem braut í bága við gamlar og góðar venjur. — Hvenær eigum við að opinbera? spurði hún, er þau höfðu gengið nokkurn spöl. — Það er ekki stund eða staður til að tala um slíkt núna, svaraði hann dálítið ergilegur. Það var margt fólk á götunni. Það er óþarfi að láta aðra heyra, þegar talað er um svoleiðis. — Ekki hlustum við eftir því, sem aðr- ir segja, og ég er viss um, að fólkið í kringum okkur hlustar ekkert eftir því, sem við tölum, svaraði hún. Og þótt svo væri, er mér sama. — Við getum talað um það á morgun eða mjög fljótlega, svaraði hann til þess að koma í veg fyrir frekari umræður um þetta mál úti á götu, innan um margt fólk. Eigum við ekki annars að snúa við? — Ekki alveg strax, bað hún, og svo héldu þau áfram. Mig langar svo til að sjá almennilega grænt gras, bætti hún við. Þetta var merkilegt uppátæki, en svona var hún. Það var víst ekki það til, sem henni gat ekki dottið í hug. Annað eins og þetta var auðvitað fjarska heimsku- legt. Gras er aldrei nema gras, og það þurfti svo sem ekki langt, til þess að sjá gras. Víða voru grasblettir í görðum kring- um hús. Liti hún annaðhvort til hægri eða vinstri, gat hún séð gras. — Ekki svona gras, sagði frúarefnið á Breiðavaði. Þetta er ekki náttúrlegt gras. Ég vil sjá gras eins og það, sem er í sveit- inni. Og hann varð að gjöra svo vel og þramma með henni alla leið vestur úr bænum. Þar voru tún, þar var gras, en túnin voru girt og varla hægt að finna grasblett, sem hægt var að stíga fæti á. Þau námu þar staðar og lituðust um. —- Þarna sérðu gras, sagði nýi prestur- inn á Breiðavaði. Ertu nú ekki ánægð? — Þetta er ekki eins og grasið í sveit- inni, svaraði frúarefnið. En það er víst ekki öðruvísi gras hér. Þetta er allt tilbú- ið gras. —• Allt gras er tilbúið — af g'uði, svar- aði hann með áherzlu. Hún svaraði ekki, heldur tók í hand- legginn á honum og dró hann með sér að girðingunni, sem skildi veginn og túnið, og áður en hann hafði áttað sig á því, sem var að gerast, hafði hún þrýst vírnetinu niður með annarri hendi, tekið ögn upp kjólinn sinn með hinni og stígið yfir girð- inguna, inn á túnið. Hún fór svo fljótt og liðlega að þessu, að ætla mátti að hún hefði ekki stundað annað frá barnæsku en að klofast yfir girðingar. Séra Bjarni varð sem þrumu lostinn yfir þessu uppá- tæki unnustu sinnar. Til allrar hamingju var ekki fólk þarna nærri. En ef svo hefði verið? Hann þorði blátt áfram ekki að hugsa þá hugsun til enda. — Vigdís. Hvað ertu að gera? spurði hann með skelk í röddinni, þegar hann mátti mæla. — Ég verð að ganga á grasi. Það er svo langt síðan ég hefi gengið á grasi, sagði hún með nokkrum þráa. En svo sló hún strax yfir í gáska. — Komdu fljótt, annars sérðu mig ekki meir í kvöld. Þú ættir að komast yfir girð- inguna, ekki síður en ég. Hann hikaði, en þó vissi hann, að þegar þessi gállinn var á henni, mundi hann verða að láta í minni pokann. Hann fór þess vegna að klofast yfir vírinn, en það tókst ekki liðlegar en svo að hann reif aðra buxnaskálmina sína. Þegar hann var kominn yfir, hljóp hún á undan honum þvert yfir túnið, og hann varð að elta.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.