Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 14
156 NÝJAR KVÖLDVÖKUR leg veizla á heimili Símonai' kauprhanns. Þegar það var komið í kring, gat séra Bjarni farið að leiða kærustuna um götur bæjarins, kinnroðalaust. Og það vildi til, að hann á kvöldin fylgdi henni alla leið upp í svefnherbergið hennar, staldraði þar ögn við, — þó aldrei nema stutta stund í einu, — án þess með sjálfum sér að ásaka sig um skort á velsæmi. Svo mikið geta viðhorfin breytzt fyrir sumum, við það eitt að setja upp hringa. Svo fóru þau að gera ráðstafanir til þess að flytja með sér norður öll nauðsynleg búsáhöld og húsgögn. Þau eyddu löngum tíma í að ákveða, hvað mikið þau ættu að hafa með af innanstokksmunum, og hvern- ig þeir munir ættu að líta út. Það er ekki svo létt að ákveða sig, þegar um slíkt er er ræða. Það'vita þeir, sem í’eynt hafa. Þegar til þess kom, að velja búsáhöld. var séra Bjarni þekkingarlítill mjög. Beygði hann sig því undir úi'skurð unn- ustu sinnar og móður, sem hafði þar hönd í bagga. Hún vissi af reynzlunni, gamla konan, hvað þurfti til þess að byrja bú- skap. Svo þegar búið var að kaupa það, sem kaupa þurfti, tók ekki betra við, en það var að ganga frá öllu, svo að engin hætta væri á að það skemmdist eða eyði- leggðist á svo langri leið. í það fór langur tími og mikil heilabrot, en að lokum tókst að ganga svo frá öllu, að ekkert var að óttast. Svo var það mai'gs konar undirbúning- um undir brúðkaupið, sem tók mikinn tíma. Skilnaðarheimsóknir til vina og frændfólks voru dag eftir dag. Hver dag- ur leið leiftui'hratt. Ein vikan leið af ann- arri. Fyrr en varði leið að þeim degi, er þau segðu skilið við þetta allt og leggðu af stað út í æfintýrið, tvö ein, og byrjuðu sína lífsbaráttu upp á eigin spýtur. Brúðkaupið stóð þremur dögum fyrir burtför þeirra. Það var viðhafnarmikið kirkju-brúðkaup með sálmasöng og blóm- um. Kirkjan var svo yfirfull af fólki, að tvær konur liðu í ómegin vegna þrengsla og loftleysis. Presturinn hélt langa og hjartnæma ræðu um helgi hjónabandsins. Síðan var dýrleg veizla heima hjá foreldr- um brúðgumans. Var þar veitt bæði mat- ur og vín af svo mikilli rausn, að margt af hinu heldra fólki, sem boðið var, varð ekki sjálfbjarga heim til sín. Brúðguminn, sem var hinn mesti hófsmaður a áfenga drykki, var ekki alveg laus við samvizku- bit út af því, hversu vínið flóði, en hann huggaðist, er hann minntist þess, að Krist- ur hafði breytt vatni í vín í Kana forðum daga. Þetta var dýr veizla, en Símon kaupmann munaði ekki mikið um þann kostnað . Blöðin gátu um hana sem ein- stakan viðburð í sinni röð. Séra Bjarni hafði hið mesta yndi áf því að lesa þær frásagnir fyrir konu sína. Það er ekki svo lítið í það varið, að komast í blöðin. Daginn eftir var séra Bjarni einn heima stund úr deginum. Kona hans og móðir höfðu brugðið sér í heimsókn til einhverr- ar kunningjakonu. Sjálfur lá hann uppi í legubekk og hvíldi sig, án þess að hugsa um nokkuð sérstakt. Honum veitti ekki af því að hvíla sig, því að ei'fiði undangeng- inna daga hafði tekið á taugarnar. En einmitt þegar hann var að komast í værð, hringdi síminn. Nauðugur reis hann upp og svaraði. Það var faðir hans, sem var að hringja heim af skrifstofunni. Hann óskaði eftir því að hann fyndi sig þangað, ef hann ætti ekki mjög annríkt.. Það var rétt með naumindum að hann stillti sig um að skrökva því, að hann hefði engan tíma. Hvers vegna þurfti karlinn endilega að ónáða hann núna? Hálfönugur lofaði hann að koma, en hann rauk svo sem ekki strax af stað. Það var víst varla svo áríðandi, að það tæki því að flýta sér þess vegna. Vefnaðarverzlun Símonar kaupmanns var í miðbænum. Hann var einn í skrif-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.