Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 17

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 17
Steindór Steindórsson frá Hlöðum: Bókmenntir. Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi: Sólon Islandus I,—II. Akureyri 1940. Útg. Þorsteinn M. Jónsson. Þegar það kvisaðist síðastliðið sumar, að á leiðinni væri stór skáldsaga eftir Davíð Stefánsson, þótti það tíðindum sæta, enda er það enginn hversdagsvið- burður í vorum fáskrúðuga bókmennta- beimi, er eitt höfuðljóðskáld þjóðarinnar bregður sér allt í einu yfir í skáldsagna- gerð, og það ekki með neinu smávegis fitli, heldur geysist fram á ritvöllinn með eina af þeim stærstu skáldsögum, sem ritaðar hafa verið á íslenzku. Það er areiðanlegt, að margir biðu sögunnar með eftirvæntingu og var forvitni á að vita, bvernig ljóðskáldinu tækist meðferð hins óbundna máls. Það var að vísu kunnugt, að Davíð var enginn viðvaningur í að fara ttieð óbundna ræðu, en hitt mun þó fæsta bafa grunað, að hann mundi fara með sögustílinn af jafn mikilli list og leikni og reynslan nú ber honum vitni um. Eins og þegar er getið, er Sólon Island- us ein hinna mestu íslenzkra skáldsagna, abs rúmar 600 síður. Efni hennar er æfi Sölva Helgasonar, flakkarans, óknytta- mannsins og auðnuleysingjans þjóðkunna. En þótt fylgt sé hinum sannsögulega þræði, þá er sagan þó fyrst og fremst skáldverk höfundarins. Ferli Sölva er þar íylgt frá því móðir hans reiðir hann þre- vetran heim að Keldum í Sléttuhlíð og þar til er hann háaldraður legst til hinn- ar hinnstu hvíldar að Yzta-Hóli í sömu sveit með hin alkunnu andlátsorð á vör- um: „Nú bið ég um náð þína, drottinn, um speki bið ég ekki, af henni hefi ég nóg“. En á milli þessara endimarka liggur hrakfallabálkur langrar æfi förumannsins, sem flestum var leiður, allur þorri manna fyrirleit, en margir óttuðust. En þrátt fyr- ir allt voru þó ýmsir, sem blekkjast létu af skrumi hans og geipi um lærdóm sinn og listir. En þrátt fyrir allt þetta geymdi hann þó alltaf neista listfengi, sem í ljós kom í teikningum hans og tilsvörum ýmsum. Hvað eftir annað gerðist Sölvi sekur við landslög og rétt, og var refsað að þeirra tíðar hætti, með hýðingu og síð- ar tugthúsvist á Brimarhólmi. En samt bar hann höfuðið hátt í skjóli takmarka- lausra sjálfblekkinga. Tugthúsvistin varð í frásögn hans háskóladvöl og í utanferð- inni kepptust þjóðhöfðingjar og vísinda- menn um að sýna honum virðingu og vin- semd, enda mat Sölvi sig margfallt meira en nokkurn annan samlanda sinna. Ólán sitt og umkomuleysi kenndi hann heimsku og skilningsleysi samtíðarinnar. Það er að vísu vafalítið mál, að samtíðin hefir átt verulegan þátt í ógæfu Sölva, ,en hins vegar er eðli hans frá barnæsku sjúkt og skaphöfn hans með þeim þverbrestum, að ekki var að undra þótt illa færi. Enginn mun neita því, sem söguna les, að Davíð tekst víða stórvel að lýsa ferli þessa auðnuleysingja og aldarhætti þeim, sem hann var vaxinn upp í. Kemur þar fram hvorttveggja í senn, skilningur skáldsins og vandvirkni fræðimannsins. Hann lýsir Sölva, svo að lesandanum verður ljóst, að þrátt fyrir allt, þá hlaut að síga á ógæfuhliðina fyrir honum vegna hans eigin geðbresta, enda þótt allt við-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.