Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 23
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 165 þriðju hæð, til frú Ström, og fengið að sitja ofurlitla stund inni í fallegu, hlýju stofunni þeirra mæðgna. í>ær mundu auðvitað verða undrandi þegar hann kæmi. En ef hann færði, þeim nú einhverja jólagjöf? Hann hafði brotið gamla postu- línskaffistellið. Jólagjöfin gat verið eins konar skaðabót. En myndi frúin vilja þiggja þá gjöf? Til dæmis sykurker og rjómakönnu úr hreinu silfri, og svo auðvitað kaffikönnu og nokkra kaffibolla. Og Ester! Ekki mátti setja hana hjá! Hvernig væri t. d. silfurfingurbjörg með dýrum steinum í, eða eitthvað þess háttar. Honum fannst hugmyndin góð. En þá datt honum allt í einu í hug, að svona til fara, eins og hann var venju- lega, gæti hann ekki látið sjá sig þarna uppi. Hann seildist í spegil og leit í hann. Honum fannst það vera villimannsandlit sem hann sá þar. Það var furðulegt, að öll börn skyldu ekki vera hrædd við hann. Næsta dag lét hann sendisveininn gæta búðarinnar í nokkrar klukkustundir. Hann byrjaði á að fá sér heitt bað. Þaðan fór hann til rakarans, næst í klæðskeraverzl- un og keypti sér ný föt, og að síðustu kom hann við hjá gullsmiðnum. Bezta stellið, sem til var í verzluninni var ekki of gott handa gömlu, vingjarn- legu kennaraekkjunni, og hann tók það hiklaust. Hann keypti líka fingurbjörg handa ungfrúnni. Hún var úr gulli með óýrindissteini, bláum að lit. En honum fannst þetta of lítilfjörleg gjöf, hann lang- aði til að gefa henni eitthvað sem stóð í sambandi við söng hennar og hljómlist. Á meðan hann var að hugsa um þetta, kom hann auga á litla hörpu úr silfri með snjó- hvítum tindrandi steinum, það var brjóst- naela, sú fallegasta, sem hann hafði nokk- urntíma séð. „Já, þetta er listaverk, en hún er líka dýr“, sagði gullsmiðurinn. „Dýr?“ át Sjönning eftir, fleygði seðla- bunka á borðið, lét síðan búa um allt saman og hélt svo heimleiðis. Aðfangadagskvöldið var komið, og all- ar krirkj uklukkur borgarinnar hri-ngdu hátíðlega,. þær hringdu inn frið og jóla- helgi, bæði á himni og jörð. Sjönning sat sparibúinn í herbergi sínu og borðaði kaldan mat. Að því búnu gekk þessi stóri og sterki maður kvíðinn og feimnislegur eins og barn upp á þriðju hæð og hringdi dyrabjöllunni. Dyrnar opnuðust hægt og hikandi, og undrandi störðu þær mæðgur á þenna óvænta gest, er gekk feiminn og vand- ræðalegur inn á stofugólfið. En feimnin hvarf brátt af honum. Það var allt svo hlýlegt og heimilislegt hér og bar nú auk þess hinn hátíðlega svip jólahelginnar. Á saumaborði ungfrúarinnar stóð lítið jóla- tré með logandi kertaljósum, en fram á milli greinanna gægðust jólabögglarnir. Hann gekk inn á mitt stofugólfið, ,,Fyrirgefið“, mælti hann, „að ég geri yður ónæði, en ég var svo einmana þarna niðri, og svo vildi ég mega hafa þá ánægju að færa yður þessar litlu jólagjafir“. Hann lagði böggulinn í kjöltu gömlu frúarinnar, en rétti Ester snoturlega um- búna öskju. „Nei, herra Sjönning, þetta nær ekki nokkurri átt!“ Undrandi og með innilegum jólafögn- uði störðu mæðgurnar á þessar dýrmætu gjafir, er ljómuðu í hinu bjarta jólaljósi. „Gerið svo vel að setjast, kæri herra Sjönning“. Gamla frúin spratt á fætur og ýtti til hans stól. „Þér megið ekki halda, að þér hefðuð ekki verið jafnvelkomnir þótt þér ekki hefðuð fært okkur þessar dýrmætu jóla- gjafir. Við erum einnig dálítið einmana,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.