Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 26
168 NÝJAR KVÖLÐVÖKUR fagra. Fögur kona, með heitt og kærleiks- ríkt hjarta. Og nú leið það í gegnum hug hans, eins og fagur draumur, hvað næst mundi koma. Frú Ström hafði beðið hann að koma við og við og líta inn til þeirra, og hann hafði áreiðanlega ekki svikist um það. Nærri því á hverju kvöldi gekk hann upp,\. spjallaði við gömlu frúna, og hlustaði á dóttur hennar spila og syngja. En stundum horfði frú Ström dálítið undrandi og eftirvæntingarfull yfir gler-, augun sín þessi kvöld. Hún sá augu Sjönn- ings hvíla á dóttur sinni, alvarleg og biðj- andi, en í hvert skipti sem dóttir hennar mætti þessu augnaráði roðnaði hún út undir eyru, og þegar hann kom inn úr dyrunum, þessi heimsóknarkvöld, roðnaði Ester. Gamla konan var í fj'rstu dálítið alvar- leg og hugsandi yfir þessu, en svo fór að færast bros yfir andlit hennar, þegar fram liðu stundir. Hún hafði oft haft áhyggjur út af því, að dóttir sín yrði svo einmana, þegar hún félli frá. En nú kynntist Ester allt í einu góðum manni, sem var enn meiri einstæð- ingur en hún. Ef að þau gætu nú fengið ást hvort á öðru, myndi framtíð þeirra verða allt önnur og fegurri fyrir þau bæði, og gamla konan brosti í laumi yfir þessum hugsunum sínum. Og svo ,var það kvöld eitt, þegar Ester fylgdi Sjönning fram á ganginn, að hún var svo fjarska lengi. Á meðan sat frú Ström í hægindastólnum og prjónaði, en stöku sinnum þurfti hún að þerra tár, sem læddust ósjálfrátt fram í augu hennar. Bara að dóttir hennar yrði nú eins ham- ingjusöm í hjónaþandinu eins og hún sjálf hafði verið. Loks kom Ester inn. Þegjandi gekk hún til móður sinnar, tók báðar hendur henn- ar og fól andlit sitt í þeim. „Litla, góðá stúlkan mín“, sagði móðir hennar blíðlega, „ég veit allt saman“. Næsta dag kom Sjönning sjálfur svo einarðlegur og djarfmannlegur, að hann var nærri því óþekkjanlegur, og með Ester við hlið sér gekk hann til gömlu frúarinnar, en hún mælti: „Ég óska ykkur hjartanlega til ham- ingju, guð blessi ykkur bæði!“ En þegar þau, skömmu síðar, stóðu Jframmi í ganginum, lagði hún handlegg- inn yfir um herðar hans og hallaði sér upp að honum. „Þú veizt, hve mér hefir alltaf verið illa við ölkjallarann. Gætir þú ekki hugs- að til að selja hann?“ „Jú, ég ætla að gera meira en selja hann. Ég ætla að loka honum til fulls. Það verður þá einum ölkjallaranum færra“. „Ó, ég þakka þér fyrir! En hvað ætlar þú þá sjálfur að gera?“ spurði hún með ljómandi augum. „Ég ætla að kaupa þetta hús. Samningar eru þegar byrjaðir við húseigandann. Svo set ég upp verzlun hér í hornbúðinni. Ég segi ritstjóranum upp húsnæðinu og við tökum þá íbúð sjálf, hún er skemmtileg og björt, með gluggum móti suðri. „Og hvað ætlar þú svo að gera við Han- sen múrara?“ Sjönning hugsaði sig um, en Ester varð fyrri til svars. „Við skulum ganga í bindindisfélag, og vita svo hvort hann vill ekki vera með. Við lofum honum ókeypis húsnæði, ef hann vilji byrja á nýju lífi og lifa eins og maður. — Og má ég svo ekki hjálpa kon- unrii og börnunum og gleðja þau eitthvað, þegar ég hefi ráð á því?“ Hann hló og mælti: „Jú, þér væri ef til vill ekkert á móti skapi að fá peninga- budduna aftur?“ „Nei, vinur minn. Það eru svo margar fátækár og bágstaddar mæður, éins og frú

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.