Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 27

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 27
NÝJAR KVÖLDVÖKUR Hansen, svo mörg hungruð og klæðlaus börn. Ó, lofaðu mér að gefa, gleðja og hjálpa. Ég skal rejma að eyða ekki of miklu“. Hann horfði alvarlega í augu hennar, en mælti svo eftir dálitla þögn: Ég hefi van- rækt móður mína til þess að safna auði. Það er mín stærsta synd. Reyndu að bæta fyrir hana með því að hjálpa þeim, sem eiga bágt. Gef þú þar, sem neyð, sorg og fátækt rfkir. Þá er ef til vill einhver von um að peningar mínir geti orðið til bless- unar. Hanv.es J. Magnússon þýddi. E, M. Hull: Synir arabahöfðingjans. SJÖUNDI KAFLI. Það var aðeins Caryll, er séð hafði og skilið augnaráð bróður síns. í augum hinna var þetta eins og hver annar fund- ur bræðra. En samt var hljóðara í tjald- inu eftir en áður. Undir borðum sat „drengurinn“ hjá Díönu, og hún leit öðru hvoru áhyggju- full á stóra örið á enni hans, en nefndi það samt ekki á nafn. Henni var ósegjanlegur léttir að hafa heimt hann aftur heilan á húfi, en hin langa og dularfulla fjarvera hans olli henni samt ótta og kvíða, og hún braut heilann um, hverskyns ævintýrum hann myndi hafa lent í, og auðséð var, að hann hafði komist í hann krappan og verið í hættu staddur. Svipur hans var breyttur og annar en áður. Drættirnir voru harðneskjulegir og þreytulegir. Hún fann það á sér, að „drengurinn“, sem reið að heiman, glaður og spaugandi, einn góðan veðurdag fyrir mörgum vikum síðan, hafði nú lagt bernskuárin að baki sér og var kominn heim aftur sem fullorðinn maður. Og þetta olli henni sársauka og sorgar. Hún varð og enn órólegri og kvíða- fyllri, er henni varð hugsað til reiknings- skila þeirra, sem nú stóðu fyrir dyrum milli feðganna. Hann gat eigi sloppið óá- talið með óhlýðni sína, en hver myndi hegning hans verða? Hún stalst til að geía manni sínum auga, en á honum var ekkert að sjá. Hann var aðeins brúna- þungur að venju, og af því varð ekkert ráðið. En hún vissi, hvað í vændum var, og kveið því mjög. Höfðinginn myndi beita fyllsta réttlæti, því að það var venja hans. En krefðist réttlætið þess, myndi hann enga misk- unn sýna, þótt í hlut ætti ungur sonur hans. Hann þekkti aðeins ein lög, og þau náðu jafnt til sonar hans sem hvers ann- ars af þegnum hans, og myndi því refs- ing fyrir lagabrot verða hin sama, hver sem í hlut ætti. Díana sá það á öllu og varð þess greini- lega vör, að sömu hugsanir og kvíði bærðust hjá syni hennar. Hún las það út úr augum hans, sem hún þekkti svo vel í öllum blæbrigðum. — Hvað hafði „dreng- urinn“ hafst að? hugsaði hún. Hann var ekki vanur að vera auðmjúkur og angur- 22

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.