Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 33

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 33
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 175 Höfðinginn sneri sér snöggt á hæl. „Þrjá mánuði!“ endurtók hann. „Og ekki einu sinni ást til afsökunar? Hamingjan góða, drengur minn, ég skil ekkert í þér“ En svo varð honum hugsað til þess með blygðun og sárri iðrun, að ekki hafði hann sjálfur getað afsakað sig með ást, er hann tók unga konu með valdi.----------- Hann tók að skálma fram og aftur um tjaldið, nam svo allt í einu staðar og lagði höndina á öxl „drengsins". „Datt þér þá aldrei í hug, hvernig þetta myndi enda?“ sagði hann í lítið eitt mildari tón. „Hugsaðir þú aldrei út í, hver afleiðingin myndi sennilega verða fyrir ykkur bæði?“ Ég veit það ekki — ég hugsaði ekki — Guð gæfi, að ég hefði aldrei séð hana!“ Það var þvílíkur örvæntingarhreimur í rÖdd „drengsins“. að höfðingjanum brá við. Og hann styrktist í þeirri trú sinni og sannfæringu, að þetta væri dýpra og alvarlegra, heldur en „drengurinn11 lét í veðri vaka. En eigi tjáði að vera að hugsa um það núna! Það stoðaði ekkert, þótt sonur hans kynni að elska þessa stúlku, hann gat samt aldrei gefið samþykki sitt til þess, er gekk þvert á móti óskum hans °g vilja. „Það er of seint að óska þess núna“, sagði hann alvarlega. Unnið verk verður eigi aftur tekið. Við verðum að hugsa um framtíðina — og þú verður að hugsa þér einhverja úrlausn málsins. Úr því að þú heldur, að hún viti eitthvað mikilvægt, er eðlilegast, að hún verði hér kyrr, unz við höfum fengið að vita það, sem hún veit. Og að því loknu mun ég reyna að §era eitthvað fyrir hana. Þú segir, að hún Se ókunnug og vinalaus í Algier, og líf hennar yrði víst ekki mikils yirði, félli hún aftur í hendur manni þeim, sem þú tókst hana frá. Þú berð því að vissu leyti abyrgð á henni. En lengra get ég heldur ekki teygt mig. Þú getur ekki gifzt henni, jafnvel þótt þú kynnir að vilja það, — og hamingjan má vita, hvort þú hefir sagt mér allan sannleikann í máli þessu. En hún er af hérlendu kyni, og þótt ég elski þjóðflokk minn innilega, óska ég þó eigi þess, að eftirmaður minn sé — kynblend- ingur. Hér í Algier er krökkt af þess hátt- ar lýð. Og ég æski þess eigi, að sonur minn bæti við þann hóp! Þú verður að skilja það til fullnustu, að þessu sambandi ykkar verður hér með að vera lokið — nú þegar. Þú verður að heita mér því við drengskap þinn — viltu ekki gera það?“ Það varð svo langur dráttur á svarinu, að höfðinginn tók að verða órólegur og. leit á armbandsúr sitt, en beið þó þögull og þolinmóður, sem þó eigi var venja hans. „Drengurinn“ lá á grúfu í legubekknum og barðist við andstæðurnar í sál sinni. Hann hafði haldið heit sitt, er hann hafði svarið þess dýran eið að hefna sín á henni. Hann hafði gert það — og samt girntist hann hana ennþá. Hvers vegna? Ást var það ekki. Ást sú, er svik hennar höfðu drepið, gat aldrei vaknað á ný. Hann hataði hana. En hvers vegna var þá svo erfitt að vinna heit það, sem af hon- um var krafizt? Það var girnd, en eigi ást, sem aftraði honum og hleypti brenn- andi ólgu í blóð hans, svo að honum lá við að æpa hátt af þrá þeirri, sem hann réði ekki við. Hann gat ekki sleppt henni, þótt hon- um væri kvöl í að sjá hana — hann gat blátt áfram ekki misst hana. Hin rólega beiðni föður hans hafði ver- ið skipun, og henni varð að hlýða. Vilji föður hans var lögmál, og þótt hann væri sonur hans, var hann einnig þegn hans og varð að hlýða skipunum hans eins og hver annar þegna hans. Það kom því eigi til mála að neita að hlýða. Og unga stúlkan? Myndi þetta ekki verða frelsun hennar undan þrældóms-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.