Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 35
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 177 „Nei, það segirðu satt“, sagði hann kald- hæðnislega, — úr því að ég, guði sé lof, get ekki verið hjá þér. Og það gleður mig að þurfa að fara frá þér!“ Hún faldi andlitið í knjám sér, svo að hann gat ekki séð, að hún barðist við að bæla niður í sér grátinn, þótt tárin rynnu niður eftir kinnum hennar. Og er hún loksins svaraði, sinnti hún ekkert bitur- yrðum hans, heldur spurði: „Hver var það, sem kom með þér áð- an?“ Hann varð forviða á spurningunni og leit tortryggnislega á hana. Var hún þá ennþá að grafast eftir, hver hann væri? Vonaði hún enn að geta hjálpað mönnum þeim, sem hann hafði tekið hana frá? Og nú blossaði upp í honum á ný öll sú heift og bræði, er hann hafði æst upp í sér út af svikum hennar og undirferli. Nú þurfti ekki að leyna hana þessu framar, og var því bezt að beita öðrum ráðum til að knýja fram játningu hennar. Hann ætlaði því að segja henni það, og þá myndi hún minnast morgunsins, er hún sveik hann. „Það var Ahmed Ben Hassan“, sagði hann stuttaralega, og bætti síðan við og brosti ertnislega: — „Djöfullinn, sem ríð- ur harðara en rjúkandi stormur, og augu hans leiftra eins og eldingar himinsins. Djöfullinn, sem er ódrepandi — hann er faðir minn!“ Hún skalf og titraði öll frá, hvirfli til úja — en svo var eins og að eitthvert afl yrði óttanum yfirsterkara. Hún leit upp og horfði einkennilega á hann. „Er það hann, sem þarf á þér að halda? Ferðu þá okki neitt annað en til hans?“ Það var auðheyrt, hve hún var kvíðin, og hún talaði svo lágt, að hann heyrði aðeins fyrri hlutann af spurningu hennar. Hann kinnkaði kolli, vafði að sér skikkjunni og gekk ofurlítið nær henni. »Og það er ekki aðeins ég, sem hann þarf á að halda, og það sem ég hefi sagt hon- um“, sagði hann með áherzlu. „Hann þarf einnig að fá að vita það, sem þú veizt og hefir ekki viljað segja mér. Væri því ekki réttara, að þú segðir mér það núna — heldur en að bíða þess, að hann neyði þig til að tala?“ Orð hans voru bein ógnun, og hún hrökk við, en hún sleppti ekki af honum augum. „Hvernig á ég að segja það, sem ég veit ekki“, sagði hún þreytulega. „Eg er búin að margsegja þér, að ég viti ekk- ert“. Hann hristi höfuðið óþolinmóðlega: „Þú hefir logið svo mörgu að mér“, sagði hann hörkulega. „En nú muntu komast að raun um, að lygar stoða þig lítið. Hann rak upp stuttan og harðneskjulegan hlát- ur og þaut á dyr. H erra! En hann nam ekki staðar við þetta bæn- aróp hennar. Hún spratt á fætur og hljóp á eftir honum og greip í handlegginn á honum. Hann ætlaði sér ekki að meiða hana, en um leið og hann sneri sér snöggt við til að hrista hana af sér, rak hann hönd- ina fast í brjóstið á henni, svo að hún riðaði og kveinkaði sér lágt og varð að þrífa í dyratjaldið til að verjast falli. Rétt á eftir læddist hún fram að tjald- dyrunum og gægðist út og sá hann stíga á bak og ríða burt með hinum mönnun- um upp brekkuna, unz þeir komu alveg upp á áshrygginn. Þar beið fylgdarliðið þeirra, sem lét þá ríða fram hjá og hélt síðan af stað á eftir þeim. Hann var horfinn! Hún ráfaði inn aftur og litaðist um í tómu tjaldinu. Fyrr um kvöldið, er hún hafði komið hingað eftir langa og erfiða ferð, hafði henni fundist hér vera himna- ríki. Hún fór að gráta og seig í kné við rúmstokkinn og grúfði andlitið ofan í svæflana, örvæntingarfull og einmana. 23

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.