Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 42

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Qupperneq 42
184 NÝJAR KVÖLDVÖKUR með öllu ókleyft að fá hana til að segja minnstu vitund um þetta. Hún virtist vera örvita af hræðslu og halda, að við værum allir einskonar djöflar. Það lá við, að þol- inmæði mín þryti við þessa þrjózku henn- ar, en samt varð ég að dást að hugrekki hennar. Þótt hún væri gagntekin af hræðslu, yfirbugaði hún samt ekki tryggð hennar og trúnað við þessa samverka- menn hennar. Og samt er hún aðeins barnung stúlka, lítil og grannvaxin, með stór og óttaslegin gazelluaugu. En hún hefir hugrekki á við marga. Hamingjan má vita, hvaðan henni kemur sá kjarkur. Það hefir ekki oft fyrir mig komið, að ég hafi orðið að láta í minni pokann fyrir öðrum. Aðeins einu sinni áður hefir mér verið sýnd álíka þrjózka og þvermóðska.. Og þá var það einnig stúlka, sem 1 hlut átti“. — Hann brosti og leit á hana björt- um augum. Díana lá um hríð kyrr í faðmi hans. En svo settist hún allt í einu upp. „Heyrðu, Ahmed — ég....“ Það var eins og ætti hún örðugt með að koma fyr- ir sig orði. „Hvað er það, ástin mín?“ „Eg — verð að sjá hana, nú undireins“. „Það kemur ekki til mála!“ Hann sagði þetta á þann hátt, að hún varð að beita öllu hugrekki sínu og þreki til andmæla. „En ég vil það, Ahmed. Og það getur hvorugum aðila orðið að meini“. „En góða, bezta, er það ekki meira en nægilega sárt fyrir þig og auðmýkjandi, að hann hefir tekið stúlkuna með sér hingað, þó að þú þurfir ekki í viðbót að standa augliti til auglitis við hana. .. . Nei, það vil ég hreint ekki,% það er af og frá!.. „En nú finnst mér, að þú gætir hlýtt mér í þetta eina skipti, Ahmed. — Þú skilur þetta ekki eins vel og á sama hátt og ég. — Þú ert karlmaður, en ég er kona. Ahmed. — Nú er það aðeins ég, sem get ráðið fram úr þessu og talað um fyrir henni. Og drengurinn er sonur minn, því máttu ekki gleyma, og, — ábyrgðin hvílir á mér engu síður en á þér. — Ef mér lízt vel á stúlkuna, og ef drengurinn, — ef — nokkuð hefir komið fyrir — þá —“ Hún þagnaði og kafroðnaði. „Nei“, greip höfðinginn fram í. „Það hefir ekkert komið fyrir. Eg spurði dreng- inn um það í morgun“. „Heldurðu þá, að hún myndi hafa sagt honum það! Nei, Ahmed. Það myndi hún aldrei hafa gert undir þessum kringum- stæðum“. „Nei, ég hefi auðvitað enga hugmynd um það. En þótt svo kynni að vera, þá er ekkert við því að gera héðan af. Eg hefi gert þetta upp í huga mínum. Þú ferð ekki til El-Hassí, heldur treystir því, að ég ráði fram úr þessu. Eg skal sjá stúlk- unni borgið, hvernig sem fer. Þú þarft því ekki að gera þér neinar áhygjur út af þessu, góða mín“. Höfðinginn gekk yfir að skrifborðinu og settist þar að vinnu. Díana skildi vel, að hann gerði það aðeins til málamynda, og gekk því til hans og lagði handlegginn um hálsinn á honum. „Elsku góði, getur þér ekki dottið í hug, að það sem hún vill ekki segja ykkur karl- mönnunum, myndi hún samt ef til vill segja mér, sem er kona?“ Höfðinginn hreytti úr sér blótsyrði og fleygði frá sér eldspýtu. „Díana!“ sagði hann reiðilega, en fór svo allt í einu að hlæja: „En hvað þú ert annars sönn kona! Eg hefði svo sem átt að skilja, að þú ætlaðir þér að vinna á mér á einhvern hátt. En þér skal nú samt ekki takast það að þessu sinni. Eg er búinn að segja, að ég vilji ekki að þú hittir hana. Láttu mig nú ekki þurfa að segja það oftar. Fyrr eða' síðar opnar stúlkan eflaust munninn, það get- urðu verið viss um. Eg hefi hvorki hugsað mér að berja hana né svelta, þótt hún

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.