Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 49

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 49
N. Kv. VITASTÍGURINN 87 Gottlieb þrýsti hönd hans, og síðan gengu þeir út á stóru svalir hælisins. Kröger læknir gekk sér til hressingar fyrir miðdegisterð eftir stíg nokkrum, sem lá upp í gegnum skóginn. Sá, sem ekki hefði veitt eftirtekt þétt-hæruskotnu hári hans, liefði mátt ætla, að hér væri kornungur maður á ferð, eftir léttum hreyfingum hans og stæltum að dæma. — Hann var að velta fyrir sér ráðgátum lífsins, þeim, sem enginn getur ráðið: — Eru raunverulega til nokkrar hamingjusamar manneskjur? Hann hafði á lífsleið sinni fyrirhitt og kynnst þrem mönn- um, sem hann hélt að kornizt hefðu svo nærri því marki, sem framast væri unnt. Það voru þeir Adarn vitavörður, Gottlieh stúdent og Sören gení. Voru þetta gáfaðir menn? Nei, tæplega yfir meðahag. Auðugir? Nei, miklu fremur fátækir af veraldar-gæð- um. Ef til vill hefði mátt telja Sören gení auðugan, þar sem hann hafði hlotið 1 ista- gáfuna í vöggugjöf. Mannþekkingu átti hann enga. Hinir tveir höfðu engar sérstak- ar gáfur né hæfileika á nokkurn hátt; en samt voru þeir hamingjusamir. Hann stóð upp í djúpum hugsunum og horfði upp eftir hlíðinni, þangað sem skóg- inn þraut, og öræfin tóku við. Miklar víð- áttur breiddust þar út, og aðrar tóku við. Hvað var að baki? Hann rétti úr sér. Það var sem dagsbrún gægðist upp í huga hans: Var það ekki góðmennska þessara þriggja og hjartalag, sem gert hafði þá hamingju- sama? — Sjálfur hafði hann gefið Itundruð- tim sjúklinga læknishjálp sína, en það hafði gerzt kalt og viðskiptalega. Frú Bramer gaf nokkur „frípláss með beztu aðhlynningu" á sjúkrahúsinu; en þó ekki fyrr, en hún hafði fengið kröftuga áminningu. Og nti varð niðurstaða athugana hans á þessa leið: Hvorugt okkar frú Bramer hefir verið oins hamingjusamt og þeir þrír. Við lifum ekki, — við aðeins hjörum og tórum. — Síð- an hélt ltann áfrarn upp stíginn. Greniskóg- urinn var gamall og þéttur, með mosagrátt skegg. Kyrrð og friður ríkti hvarvetna, og lieyrðist aðeins f jarlægur niður árinnar neð- an úr dalnum. Hvítklædd kona kom gangandi á móti honum. Hann sá Rauðakrossmerki á hand- legg hennar, og ofurlítill gullkross blikaði á barmi hennar. „Ein systranna á hælinu“, liugsaði hann og ætlaði að ganga fram hjá henni. Þá leit hún upp, og augu þeirra mættust: „E 1 í n!“ „Hér heiti ég systir Madeleine," sagði hún stillilega. „Elín, að við skyldum hittast aftur!“ Hann tók hönd hennar og laut að henni. Hann skall: af geðshræringu. „Þú skelfur," sagði hún stillilega. „Við skulum setjast hérna,“ sagði hún og benti á fallin trjábol inni í skóginum. Hvor- ugt þeirra mælti orð. Allur skógurinn hlust- aði. Hann hélt í hönd hennar, og hún tók hana ekki til sín. „Ertu hamingjusöm, Elín?“ spurði hann. „Starf mitt hefir gert mig hamingju- sama.“ „Starf þitt?“ „Yfirbót mín — — —Nú varð aftur hljótt; aðeins heyrðist árniðurinn í fjarska. „Þú hefir þá verið mönnunum góð?“ „Eftir beztu getu, að það hefir gert mig hamingjusama, svo hamingjusama, sem unnt er.“ Hún sat stundarkorn þegjandi. Síðan sagði hún: „Hinn látni vinur þinn þarna inni var stórt, hamingjusamt barn. Ég hitti hann í'yrst fyrir mörgum árum. Hann gaf mér þá eina af myndum sínum. Og í endurgjalds- skyni hét ég að senda honum kveðju árlega á afmælisdegi hans, og það hefi ég gert síð- an; því að ég vissi, að það mundi gleðja hann. Mynd hans hefir hangið á veggnum mínum síðan. Hún sýnir ofviðri með dimm- um skýjum og skuggalegum, sem þjóta yfir jörðina; en að skýjabaki brýzt sólin skyndi-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.