Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 54

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 54
92 FLÓTTAMENNIRNIR N. Kv hafði sagt honum frá fyrirætlunum okkar. Moll neitaði honum um þátttöku. Ég heyrði hvað þeim fór á milli. Þeir stóðu andspænis hver öðrum með kreppta hnef- ana og gnístu tönnum. Hvorugur hafði ótta af hinum. Það var rneinið. Og Moll gat ekki átt það á hættu að hafa nokkurn mann með, sem ekki hræddist hann. Verne hefði getað orðið hættulegur áhrifavaldi hans. Það var Verne, sem hafði tekið DuFond undir verndarvæng sinn. Verne leit eftir honum, barðist fyrir hann og gaf honum peninga. Vinátta þeirra hafði djúp áhrif á Verne. Honum var farið að þykja vænt um DuFond — og það var líklega í fyrsta sinn, sem það hafði komið fyrir hann. DuFond gat vafið lionum um fingur sér. Annars var Verne mesti harðjaxl. Þegar hinir fréttu það, að Moll hefði neitað að hafa Verne með, kom okkur öll- um saman um að það væri ágætt. Hann hefði komið einhverjum vandræðum af stað; jaað var enginn efi á því. Það voru ekki minnstu líkindi til að hann færi að koma upp um okkur. Þeir, sem svíkja fé- laga sína í sakamannanýlendu, eiga ekki langt eftir ólifað. Fyrr en varir deyja þeir af slysförum. Svo er líka vonin fram á síð- ustu stundu að geta orðið þáttakandi í flóttatilrauninni. Nei, Verne mundi ekki segja frá neinu. En tíundi maðurinn. Hver átti það að vera? II. Þá kom Jean Cambreau. Enginn okkar vissi hver hann var eða hvaðan hann kom. Það var mögulegt, að sumir okkar hefðu ekki þekkt liann úr hópi allra sakamann- anna. En Jrað var næstum því óhugsanlegt, að enginn af okkur níu skyldi kannast neitt við hann. Hann kom alveg óvænt, lagði finnn hundruð franka í lófa Molls og sagði: „Gjörðu svo vel að taka mig með.“ Ekkert kvabb eða kvein; engin málskrúð- ug lýsing á kostum hans, eða hvað hann gæti gert rnikið til að flóttinn heppnaðist. Og málhreimurinn var öruggur, en það er ekki venjulegt hjá sakamönnum/ Moll, sem hafði hellt svívirðingum yfir þá, sem vongóðir höfðu verið, og sagt, að jreir gætu rotnað í forargryfjunum, sem þeir' ættu heima í — sagði nú aðeins: „Gott og vel.“ Það virtist alveg gagnstætt eðli hans, að gefa samþykki sitt svo greiðlega, án nokk- urra háðsyrða, án þess að spyrja hver mað- urinn væri, hvernig hann hefði komizt að fyrirætlunum okkar, hvaðan hann kæmi, hvað hann væri sekur um, og hvert hann ætlaði að fara. . . . Ég botnaði ekkert í þessu. Cambreau hafði aðeins beðið um að fá að vera með. Jæja, okkur vantaði tíunda manninn.... Nú vorum \dð búnir að ná í hann. Við ætl- uðum að leggja af stað morguninn eftir til strandarinnar, einn og tveir á strjálingi. III. Það var farið að rökkva, jregar við Cam- breau komum niður á ströndina. Við vorurn búnir að sjá hana nokkurn spöl innan úr frumskéginum. Við komum auga á hvítan sandinn, jregar trén fóru að verða strjálli. Blettirnir, senr við sáum af himninum voru fjólubláir að lit. Ég fékk ofbirtu í augun af að horfa á þá, en jrað var af því að augun voru farin að venjast hálfrökkrinu í sólar- lausu feni frumskóganna. Tveir hræðilegir dagar voru liðnir; hver einasti þyrnir, sem stakk vegfaranda í fótinn, gat verið högg- ormur. Þegar brakaði í trjágreinunum að næturlagi, mátti alltaf búast við að jrar væri jagúar á ferð; hver bogin grein gat verið kyrkislanga. Himininn var dýrlegur. Það sér hvergi í himininn inni í frum- skógunum. Trén vaxa allt of þétt saman til þess. Ég var illa farinn. Ég var of gamall til að leggja upp í svona leiðangur. Ég vissi vel að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.