Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 7

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 7
N. Kv. UM SUMARDAG 91 Laugardagurinn var dagur mikilla um- svifa, aðdrátta og ráðagerða. — Eg kemst ekki hjá því að fá mér benzín á bílinn og mér tekst reyndar að koma honum að benzíngeymi „Esso“, án þess að nokkuð beri til tíðinda. — Fjörutíu lítra, takk, segi eg heims- mannlega við afgreiðslumanninn um leið og eg skrúfa lokið af. En maðurinn stendur grafkyrr og starir á mig, eins og þetta væri í allra fyrsta sinn, sem maður færi fram á að fá benzín úr þessurn geymi. — Hvað? segir hann, ætlarðu að láta benzínið í hann þarna -—- í vatnskassann? Mér bregður í brún. — Nú, eg hef oft séð menn vera að hella í þá þarna, verður mér að orði. — Já, vatni, en ólíklega benzíni. Hvar er opið á benzíntanknum? Eg hringgeng bílinn, hvað eftir annað, en sé enga smugu, sem lítur út fyrir að vera ætluð fyrir benzín. Afgreiðslumaðurinn stingur efripartinum inn í bílhúsið, þar sem Marsibil situr í framsætinu. — Vill frúin gjöra svo vel að lyfta sér ögn í sætinu, segir hann kurteislega. — Já, Grunaði ekki Gvend. Hérna er hann, kallar hann sigri hrósandi og stingur slönguendanum inn undir sitjandann á Marsibil og byrjar að láta buna. Þetta gengur svo fram af mér, að ég á ekkert einasta orð til í eigu minni. — Þakka þér fyrir, frú, segir hann svo. -r— Þetta eru 40 lítrar, bætir hann við og fer að skrifa reikninginn. Eftir að hafa borgað, ætla ég að aka af stað. En nú skeður nokkuð kynlegt. Vélin gengur að vísu af fullum krafti, en það er sama hvernig ég spýti í; bíllinn rótast ekki úr stað. Marsibil kallar á afgreiðslumann- inn. Eg verð víst að biðja þig að hringja á bíl til að draga mig á verkstæði, segi ég við manninn. — Ég er bilaður. — Nú, hvað er að? segir maðurinn. Er ekki bíllinn í blússandi gangi? Hvað er eig- inlega að? — Hjólin snúast, — ég meina — hjólin snúast ekki, flýtti ég mér að segja. Maðurinn stingur sér aftur inn í jeppann lijá Marsibil og bograr eitthvað niður við gólf, eins og hann sé að gá upp undir pils- in hennar. — Hvað heldurðu að þetta sé? Finn- urðu einhverja bilun þarna? segi ég alvar- lega. — Eg hugsa, að þetta sé ekki annað en það, að frúin hefur líklega rekið fótinn í drifskaftið og sett það úr sambandi. Reyndu nú að taka af stað. Jú, mikið rétt. Nú taka hjólin að snúast og bíllinn rennur af stað. — Já, það er margt að athuga í sam- bandi við bílakstur, Marsibil, segi ég, um leið og ég tek fallega beygju fyrir hnédjúpa gloppu í Skipagötunni. Þegar tekizt hafði að sjá sæmilega fyrir þörfum munns og maga, að því er Marsibil taldi, brá hún sér í Apotekið og hafði það- an með sér heljarmikinn lager af plástrum, joði, blývatni, spelkum og sárabindum, spíritus, kamfóru, asperíni og mörgu fleiru, sem ég þekki engin nöfn á. — Hvað gengur eiginlega að þér kona? varð mér að orði. Ætlarðu að fara að stofn- setja apotek hérna í Fjörunni, eða hvað ætlastu fyrir með þessum innkaupum? — Nú, ég hef hugsað mér að vera við öllu búin, ef eitthvað skyldi koma fyrir í ferðinni. Það er ekkert spaug að standa uppi með tvær hendur tómar, ef maður kynni að verða fyrir einhverju slysi á ferða- lögum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.