Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 8

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 8
92 UM SUMARDAG N. Kv. Þú ferð með þetta út í bílinn, og þar skal það verða framvegis. Ég tek við apotekinu og fer með það út í bílinn og mér verður á að nöldra ofan í bringu mína: Nú, það er líkast því, að maður sé að leggja upp í stríð, en ekki sportreisu með frúna sína. Um kvöldið, þegar við erum háttuð, tek- ur Marsibil fram bókarkver, Slysavarnir og hjálp í viðlögum, og fer að lesa hátt og skipar mér að hlusta. Svo les hún yfir mér urn alls konar slys- farir, stórmeiðingar og átakanlegar kremm- ingar, þangað til hárin taka að rísa á höfði mínu af angist og kvíðahrolli. Síðast tekst mér þó að leggjast á betra eyrað, en troða sængurhorninu upp í hitt. Við þetta breytist lesturinn hjá Marsibil í samfellda suðu, svæfandi og róandi, og að lokum tekst mér að sofna. En þetta verður þó í rauninni enginn svefn, heldur ein samfelld martröð af erf- iðum draumum, bílakstri í hrikalegu lands- lagi með óteljandi Vaðlaheiðar-beygjum og geigvænlegum hættumerkjum á hverju strái. Og ég upplifi allar hugsanlegar slysfar- ir, árekstra, veltur, eldsvoða, beinbrot, lið- hlaup og blæðingar. Síðast erum við Marsi- bil orðin gangandi á veginum, en göngulag- ið verður heldur svona skrykkjótt, því að við eriun bæði gengin úr augnakörlunum. Ég verð því beinlínis feginn, þegar Mars- ibil vekur mig harkalega og skipar mér að hypja mig í brækurnar og komast af stað. Eftir nokkrar smásennur og fjaðrafok rennur bíllinn tignarlega úr hlaði með okk- ur hjónin bæði í framsætinu, en í aftursæt- inu er hlaði af matvælum og sjúkravörum, svo að nægja mundi meðal herdeild um ó- fyrirsjáanlegan tíma. Ferðalagið virðist ætla að ganga vel, til að byrja með a. m. k., þrátt fyrir erfiða drauma og voveifleg hugboð. Fáir eru á ferð um veginn svo árla dags sem betur fer, því að mér finnst vegar- breiddin ekki meir, en rétt svona hæfileg fyrir mig einan. Ég verð því fljótlega var við lítilsháttar taugaóstyrk, þegar ég kem upp undir heið- arbrúnina og sé, að á móti mér kemur eitt heljarmikið mjólkurtrog, svo breitt, að ég sé ekki betur en það standi útaf veginum beggja megin. Ég færi mig útá vegarbrún, svo langt sem ég þori og bíð átekta. Trogið keniur fast upp að mér með dómadagsskrölti, drunum og skurki, og við þykjumst sjá, að bílstjórinn vilji hafa tal af okkur og Marsibil bregður sér út til mannsins. — Hvað er hann að segja, Marsibil? segi ég, þegar hún kemur til baka. — Hann vill bara vita, hvern fjandann þú meinir með því að vera með bílinn þarna á miðjum vegi, segir hann. Eg fer að athuga kringumstæðurnar. Jú, það eru að vísu einir þrír fjórir metrar út að mínum kanti. Ég verð líklega að hætta á að færa mig ögn til hliðar, þó að það sé liart að þurfa að gera mannskömminni það til vilja. Ég stíg á startarann, en nú bregður svo við, að hann gefur frá sér eitthvert ókenni- legt baul og annað skeður ekki. Eg reyni aftur og aftur með sama árangri. Það er að koma á mig fát, því að bílstjórinn á mjólk- urtroginu hamast á flautunni sem vitlaus væri. Nú versnar í því. Hann vill ekki ganga, segi ég.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.